Esja Fasteignasala KYNNIR:Um er að ræða fjögurra herbergja 135,9 fm endaíbúð á 3.hæð með inngangi af opnum svalagangi. Íbúðin er er rúmgóð og vel skipulögð með geymslu inn af bílakjallara og bílastæði. **ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.****MAKASKIPTI**Íbúðin er endaíbúð og því með glugg... Sýna meira
Esja Fasteignasala KYNNIR:Um er að ræða fjögurra herbergja 135,9 fm endaíbúð á 3.hæð með inngangi af opnum svalagangi. Íbúðin er er rúmgóð og vel skipulögð með geymslu inn af bílakjallara og bílastæði. **ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.****MAKASKIPTI**Íbúðin er endaíbúð og því með glugga á 3 vegu.Eignin er staðsett í grónu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþrótta- og útivistarsvæði.Íbúðin telur forstofu, hol, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi. Í bílakjallara er sérstæði auk þess sem geymsla í bílakjallara fylgir íbúðinni. Í sameign er að finna hjóla/vagnageymsla. Nánari lýsing:Forstofa: Flísar á gólfi og stórir skáparSamliggjandi stofa og borðstofa: Parket á gólfi, opið rými með stórum gluggum sem veita mikla birtu. Úr stofu er gengið út á svalir.Eldhús: Flísar á gólfi, Eldhúsinnrétting með bakaraofni, uppþvottavél, ísskápi, vask og helluborð.Svefnherbergi 1: Parket á gólfi, stórir fataskáparSvefnherbergi 2: Parket á gólfi Svefnherbergi 3: Parket á gólfi og stórir fataskápar. Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, baðkar, sturta og handklæðaofn. Innrétting með handlaug og góðu geymsluplássi.Þvottaherbergi: Flísar á gólfi, vaskur og vinnuborð með plássi fyrir þvottavél og þurrkara undir.Geymsla: Hefðbundin geymsla í sameignBílastæði: Í lokuðum bílakjallara merkt. B310Athygli er vakin á því að skv. opinberum gögnum er eignin aðeins skráð með 3 herbergi en búið er að bæta við 1 svefnherbergi svo þau eru í raun 3 og því 4 herbergi alls. Bílastæði í lokuðum bílakjallara merkt B310. Nánari upplýsingar veitir Birgir Valur í síma 694-8474 eða í tölupósti Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.