Viltu fasteignir kynna Hafnarbraut 14a sem er 100,7m2 vönduð 3ja herbergja íbúð ásamt stæði í bílageymslu.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit, húsfélagsyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.
Um er að ræða fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í vönduðu, nýlegu lyftuhúsi við sjávarsíðuna á Kársnesinu.
Eignin skiptist í forstofu, samliggjandi stofu/borðstofu og eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og svalir. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni og einnig er talsverður fjöldi af sameiginlegum bílastæðum utanhúss. Eignin stendur við vinsælan göngu- og hjólastíg sem liggur meðfram strönd Kársness. Þá mun ný borgarlínubrú rísa í nágreninu sem mun tengja Kársnesið við miðborg Reykjavíkur.
Eignin er skráð 100.7m2
Fallegt planka harðparket á öllu nema baðherbergi, þvottahúsi og geymslu sem eru flísalögð.
Nánari lýsing:
Forstofa: Frá sameign er gengið í forstofu/gang og þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Góður innbyggður fataskápur er í forstofu
Stofa/borðstofa: Samliggjandi og mjög rúmgóð í opnu og björtu rými. Stórir gólfsíðir gluggar. Frá stofu er gengið út á svalir.
Svalir: Út frá stofu eru um 5m2 svalir.
Eldhús: Vönduð sérsmíðum innrétting frá Voke - III. Mikið skápapláss og stór eyja með spanhelluborði. Borðplötur úr akrílsteini frá Durastone með ísteyptum vaski. Ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskapur.
Baðherbergi: Flísalagt að mestu með fallegum flísum. Góð "labb-inn" sturta, innbyggt upphengt klósett og handklæðaofn. Vönduð og rúmgóð innrétting með speglaskáp og fallegri lýsingu. Borðlata úr akrílsteini með ísteyptum vaski.
Hjónaherbergi : Rúmgott og bjart með stórum innbyggðum fataskáp.
Herbergi 2: Gott og bjart herbergi með innbyggðum fataskáp.
Þvottahús: Innan íbúðar er sér þvottahús með góðri innréttingu með plássi fyrri þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Innaf þvottahúsinu er góð geymsla.
Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir. Hleðslustöð fyrir rafbíl er við stæðið(stöðin er leigð í gegnum húsfélagið)
Í sameign er einnig sameiginleg hjólageymsla.
Eignin er á frábærum stað við sjávarsíðuna vestast á Kársnesi þar sem stutt er í þjónustu, skóla/leikskóla og útvist!
Nánari upplýsingar veita Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 / heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu























| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
| 3 | 100,70 m² | 89.900.000 kr. 24. ágúst 2026 | 58.900.000 kr. 30. júlí 2021 |
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 24.08.2026 Nánar | 100,7 m² | 892.751 kr. | 89.900.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 30. júlí 2021 | 58.900.000 kr. |
0201 | - | - | - | 86.800.000 kr. 3. september 2024 |





























0403 | - | - | - | 52.900.000 kr. 20. júlí 2022 |
0101 | - | - | - | 67.500.000 kr. 30. nóvember 2021 |
0202 | - | - | - | 68.500.000 kr. 5. júlí 2021 |
0203 | - | - | - | 51.900.000 kr. 29. júní 2021 |
0302 | - | - | - | 92.900.000 kr. 11. maí 2022 |
0303 | - | - | - | 52.900.000 kr. 24. júní 2021 |
0304 | - | - | - | 59.900.000 kr. 3. ágúst 2021 |
0404 ![]() | 3 | 100,70 m² | 94.900.000 kr. 29. ágúst 2026 | 60.900.000 kr. 19. júlí 2021 |
0402 | - | - | - | 70.500.000 kr. 20. júlí 2021 |
0401 | - | - | - | 70.900.000 kr. 22. júní 2021 |
| - | - | - | 69.900.000 kr. 18. júní 2021 |
| 2 | 58,90 m² | 59.900.000 kr. 9. maí 2026 | 57.500.000 kr. 1. júní 2026 |
0501 | - | - | - | 115.000.000 kr. 16. júní 2021 |
0502 | - | - | - | 114.900.000 kr. 13. ágúst 2021 |
0102 | - | - | - | 71.900.000 kr. 3. ágúst 2021 |
0104 | - | - | - | 62.900.000 kr. 3. ágúst 2021 |