** Opið hús miðvikudaginn 18. september frá kl. 17:00 til 17:30** - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir:... Sýna meira
** Opið hús miðvikudaginn 18. september frá kl. 17:00 til 17:30** - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 113,2 m2, 4ra herbergja endaíbúð á efstu hæð með gluggum á þrjá vegu, í lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Vefarastræti 34 í Mosfellsbæ. Mjög fallegt útsýni er frá eigninni. Birt stærð eignarinnar er 113,2 m2, þar af íbúð 105,4 m2 og geymsla 7,8 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, þvottaherbergi, gang , stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Nýtt parket er á gólfum. Ný innrétting í þvottahúsi og nýjir fataskápar. Eignin verður afhent með nýjum innihurðum og nýjum hurðakörmum.Bílastæði með hleðslustöð fyrir rafbíla í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni. Svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni. Frábær staðsetning, rétt við Helgafellsskóla. Stutt í almenningssamgöngur og vinsæl útivistarsvæði.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og fataskáp.Gangur er með parketi á gólfi.Stofa og eldhús eru í opnu björtu rými með útgengi á 8,5 m2 svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni. Í eldhúsi er L-laga innrétting með viðaráferð á neðri skápum en efri skápar eru hvítmálaðir. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Borðplata er hvít og úr harðplasti.Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.Baðherbergi með flísum á gólfi, innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og "walk-in" sturtu. Hiti er í gólfi á baðherbergi. Þvottaherbergi er inn af forstofu með góðri innréttingu með skolvaski og gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.Sérgeymsla er í kjallara 7,8 m2Bílastæði í lokaðri bílageymslu, merkt B01, fylgir eigninni. Hleðslustöð fyrir rafbíla er við bílastæðið.Vagna- og hjólageymsla er í sameign í kjallara.Verð kr. 87.900.000Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.