Stefán sími 8969303 og Domusnova kynna Skólastíg 32, Stykkishólmi. Um er að ræða bjarta og rúmgóða fimm til sex herbergja efri sérhæð í tvíbýli ásamt tvöföldum bílskúr. Íbúðarrými eignar er 154,1 fm. og skiptist í anddyri, opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús. Innra skipulagi eignar hefur verið breytt frá því upprunalegu og eru tækifæri til að breyta því enn frekar. Bílskúr er 53,2 fm.
Skipti mögulegGóð staðsetning og stutt er í alla þjónustu svo sem skóla, íþróttamiðstöð/sundlaug, verslun verslanir og Hólmgarð.
Nánari lýsingAnddyri: Flísar á gólfi.
Eldhús: Eldri innrétting með efri og neðri skápum. Gert ráð fyrir uppþvottavél og, blástursofn, eb helluborð og vifta fylgja. Gott skápapláss og góð vinnuaðstaða. Borðkrókur. Parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Rúmgott og bjart rými frá eldhúsi með stórum gluggum. Parket á gólfi.
Hol: Innangengt er í tvö herbergi og út á litlar suðvestur svalir með góðu útsýni. Flísar á gólfi. Á gangi er parket á gólfi.
Svefnherbergi eignar eru fjögur og er fataskápur í tveimur þeirra.
Baðherbergi: Endurnýjað að hluta. Innrétting með góðu skápaplássi. Baðkar með sturtugleri. Veggflísar. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Tengi f. þvottavél / þurrkara og sturtu. Útgengt út á skjólgóða timburverönd með háum skjólvegg, hlið þar sem gengið er í garð.
Geymsla: Hillur. Parket á gólfi.
Bílskúr: Tvöfaldur, 53,2 fm. bílskúr með tveimur innkeyrsluhurðum. Önnur er rafdrifin. Bílskúr hefur verið skipt upp í tvö rými sem er opið að hluta. Bílskúrinn býður upp á mikla möguleika.
Lóðin: Húsið stendur á 771,0 fm. hornlóð með fallegu útsýni. Samkv. eignaskiptayfirlýsingu hefur efri hæðin sérafnot á norðurhluta lóðar. Garðurinn er með margvíslegum trjágróðri og skjólgóðri timburverönd, hellulagður göngustíg að inngangi sem og meðfram húsi að framan að bílskúr. Grasflöt við hlið bílskúrs og fyrir aftan hús að timburveröldinni. Malarborið plan fyrir framan bílskúr með tveimur bílastæðum.
Helstu endurbætur að sögn seljanda síðan 2018Stór hluti af parketi, gluggar að hluta til (rest fylgir), hús málað 2021 rest 2025, drenað undir sólpalli, frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar að stæðstum hluta.
Hér er um mjög áhugaverða eign að ræða með mikla möguleika fyrir réttan aðila á frábærum stað í Stykkishólmi.
Allar nánari upplýsingar veitir Stefán sími 896-9303 / stefan@domusnova.is