BYR fasteignasala kynnir í einkasölu Sjónarvegur 3 ÍBÚÐ 403, 210 Garðabær. Þriggja herbergja endaíbúð á efstu hæð í lyftuhúsi með bílastæði í lokaðri bílageymslu.Útsýni að Heiðmörk, stutt í alla helstu þjónustu, Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt, byggt árið 2020. Eignin skiptist í íbúð... Sýna meira
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu Sjónarvegur 3 ÍBÚÐ 403, 210 Garðabær. Þriggja herbergja endaíbúð á efstu hæð í lyftuhúsi með bílastæði í lokaðri bílageymslu.Útsýni að Heiðmörk, stutt í alla helstu þjónustu, Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt, byggt árið 2020. Eignin skiptist í íbúð 90.3 m² og geymslu 4.3 m², samtals 94.6 m² samkvæmt skráningu HMS.Skipulag eignar: Anddyri/gangur, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Í sameign geymsla og bílastæði í bílgeymslu. ***Íbúðin er laus strax við undirritun kaupsamnings***Nánari lýsing: Anddyri/gangur, liggur að öllum rýmum eignarinnar. Alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu.Eldhús, HTH innrétting, AEG tæki, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, ofn og helluborð. Kvarssteinn á innréttingu.Tvö svefnherbergi, hjónaherbergi með HTH fataskáp, Ikea fataskápur í barnaherbergi. Útgengt er út á suðursvalir fyrir framan minna herbergið. Baðherbergi, upphengt salerni, vaskinnrétting, sturtugler, handklæðaskápur á bakvið hurð, handklæðaofn og gluggi. Gólfhiti á baði. Tæki eru frá Tengi.Þvottahús, pláss fyrir tvær vélar, skápar. Geymsla er í sameign á fyrstu hæð. Gólfefni: Fiskibeinaparket frá Parka eru á allri eigninni nema á baðherbergi og þvottahúsi þar eru flísar frá Parka.Sjónarvegur 3 er steypt hús, fjórar hæðir með 10 íbúðum. Ein íbúð er á fyrstu hæð og þrjár íbúðir á annarri til fjórðu hæð. Húsið er hannað af Úti og Inni arkitektar. Innahússráðgjöf Haf-studio.Húsið er klætt að utan með áklæðningu frá Áltak. Íbúðin á stæði í bílageymslu, búið að setja upp tengi fyrir hleðslustöð en stöðin sjálf er ekki til staðar. Sex stæði eru í bílageymslu. Hellulagt bílastæði, bæði fyrir ofan hús og neðan. Lóðin er sameiginleg 1.064,0 m² leigulóð í eigu Garðabæjar.Skráning eignarinnar hjá HMS:Fastanúmer 224-8861.Stærð: Íbúð 94.6 m². Byggingarár: 2020.Byggingarefni: Steypa. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.Um skoðunarskyldu:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala