Gimli fasteignasala og Kristján Gíslason kynna Rósarimi 6, sem er einstaklega falleg og mjög mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð, á annari hæð í þriggja hæða fjölbýli. Íbúðin er 80 fm að meðtalinni 4,4 fm geymslu í kjallara. Árið 2019 var íbúðin tekin í gegn á vandaðan hátt að innan og m.a. sett... Sýna meira
Gimli fasteignasala og Kristján Gíslason kynna Rósarimi 6, sem er einstaklega falleg og mjög mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð, á annari hæð í þriggja hæða fjölbýli. Íbúðin er 80 fm að meðtalinni 4,4 fm geymslu í kjallara. Árið 2019 var íbúðin tekin í gegn á vandaðan hátt að innan og m.a. sett ný innrétting og tæki í eldhúsið, baðherbergið allt endurnýjað og sett vandað harðparket á öll gólf. Skipt var um allar innihurðir, innréttingar, skápa og rafmagnstengla. Árið 2023 var húsið múrviðgert og málað og skipt var um glugga, gler og svalahurð, sunnan megin. Dýrahald er leyft í húsinu. Smellið hér til að sjá myndband af eigninni.Bókið skoðun hjá Kristján Gíslason í síma 691-4252, eða Nánari lýsing eignar. Sameiginlegur inngangur í húsið er á jarðhæð en þegar komið er upp á aðra hæðina er gengið út á svalir og þar er sérinngangur í íbúðina. Flísar eru á gólfi anddyris og þar er stór hvítur fataskápur. Í eldhúsi, sem er til hægri þegar inn er komið, er nýleg stór innrétting sem nær upp í loft. Skápar eru hvítir háglans en hluti efri skápa eru brúnir með viðaráferð. Ljós borðplata og gler á milli efri- og neðri skápa. Ofn og örbylgjuofn eru í vinnuhæð. Opnanlegur gluggi sem snýr út á sameiginlegu svalirnar. Stofa og eldhús mynda eina fallega heild og úr stofu er gengið út á rúmgóðar suður svalir. Barnaherbergið er til vinstri þegar komið er inn í íbúðina. Þar er stór hvitur fataskápur og tveir gluggar, annar stór og hinn minni og opnanlegur. Við hlið barnaherbergis er baðherbergið. Þar er rúmgóð sturta, dökkar flísar á gólfi og einnig á veggjum við sturtu en ljósar flísar á öðrum veggjum. Vegghengt salerni og innrétting undir vaski. Tengingar fyrir þvottavél og hilla fyrir þurrkara. Hjónaherbergi er við hlið baðherbergis og þar er stór hvítur fataskápur og tveir gluggar, annar stór og hinn minni og opnanlegur. Sérgeymsla 4,4 fm, er í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Gróinn garður er bæði fyrir framan og aftan húsið. Húsfélagið er búið er að setja upp rafhleðslu fyrir tvo bíla við bílastæði sem merkt er íbúðinni. Það stæði er þó ekki í eigu íbúðarinnar og þar geta aðrir íbúar hlaðið bíla sína.Stórglæsileg íbúð í barnvænu hverfi þar sem er stutt í alla þjónustu, leik- og grunnskóla og gróskumikið íþróttastarf.Á öllum gólfum íbúðarinnar er 14mm vandað harðparket frá Birgisson, nema í anddyri og á baðherbergi, þar eru flísar. Allar innréttingar og eru vandaðar og skápar ná upp í loft. Vandaðar innihurðir frá Birgisson. Tæki í eldhúsi eru frá Smith & Norland og á baðherberginu frá Tengi.Nánari upplýsingar veitir: Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, tölvupóstur eða Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.