Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:
Mikið endurnýjað sumarhús á einstaklega fallegri lóð í Reykjaskógi, Bláskógarbyggð.
Aðkoma að húsinu er virkilega falleg, mikið af fallegum timburpöllum við húsið, heitur pottur á sér svæði, leiktæki á fallegri grasflöt sem umvafin er trjám og gróðri.
Miklar endurbætur voru gerðar á húsinu árin 2019-2026, sjá nánar í lýsingu í söluyfirlit sem fæst hjá fasteignasala.
Húsið er skráð 48 fm, þar að auki er svefnloft yfir hluta hússins (um 20 fm) sem er með opnanlegum glugga, lægri lofthæð og undir súð og svo er köld geymsla sem bíslag um 3-4 fermetrar sem einnig er óskráð.
Bústaðurinn er timburhús byggt 1987 á steyptum súlum og stálbitum klætt standandi viðarklæðningu, kynntur með hitaveitu.
Eignin stendur á 2.576 fm, mjög gróinni og fallegri, leigulóð með gildan lóðarleigusamning til 2043.
Hægt er að kaupa lóðina af landeiganda, kjósi fólk það á tæpar 2.000.000 kr.
Megnið af innbúi eignarinnar og búnaði fylgir með í kaupunum utan persónulegra muna.
Nánari lýsing: Hús að innan er panelklætt og stofa og eldhús eru í opnu rými með uppteknu lofti og útgengi á suður sólpall. Í forstofunni er nýr tvöfaldur fataskápur í forstofu (IKEA), eldhúsið var endurnýjað 2020 með hvítri eldhúsinnréttingu frá IKEA, innbyggður ofn (Gram), helluborð (Electrolux), uppþvottavél (Electrolux) og frístandandi ísskápur (Electrolux). Baðherbergið var einnig endurnýjað 2020, baðherbergisveggir klæddir vatnsþolinni spónaplötu og málaðir hvítir (panelklæðning rifin og veggir opnaðir), settur nýr hornsturtuklefi, nýtt salerni, ný handlaug með skáp, nýr skápur yfir með spegli og hár hliðarskápur. Einföld hitastýring fyrir útipott sett á vegg og niðurfall sett í baðgólf. Tvö svefnherbergi eru í húsinu, annað herbergjanna er með tvöföldu rúmi og koju, hitt með tvöföldu rúmi. Svefnloft er yfir hluta hússins (fremur lágt til lofts) með glugga og tveimur rúmum. Sólpallur er á þrjá vegu við húsið, með handriðum og tröppum á fjórum stöðum niður í garð. Heitur pottur er blómaskel frá Trefjum með einangruðu loki og tilheyrandi, keypt og sett upp árið 2018, nýtt lok sett 2026 og er potturinn á sér palli með háum skjólveggjum. Góð skriðhæð er undir húsinu (ca 1m +/-). Gott geymslupláss þar. Grindverk upp að palli allan hringinn með nokkrum opnanlegum hliðum. Geymsluskúr er óeinangraður og áfastur húsinu, ca. 3-4 fm. Bílastæði er stórt og malborið.
Bústaðarinn í um 10-15 min göngufæri við Brúarfoss, u.þ.b. 90 km frá Reykjavík og er einungis um 10 mínútna akstur á Laugarvatn, Reykholt og Geysi.
Læst símahlið er inn á sumarhúsasvæðið. Mjög gott og virkt félag sumarhúsaeigenda í Reykjaskógi. Sameiginlegur leikvöllur á svæðinu með minigolfbrautum, frísbígolfkörfum o.fl. Snjóruðningur á föstudögum og sunnudögum á veturna ef þörf er á.