Nýtt á skrá! Nesvegur 61 í Reykjavík - falleg 3ja herb. íbúð með útsýni út á sundin, svölum til suðurs með svalalokun og bílastæði með rafhleðslustöð.Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir til sölu afar fallega og sjarmerandi 83,2 fermetra 3ja herbergja íbúð á 2.hæð í steinsteyptu fjórbýli, byggðu árið 1995, við Nesveg 61 í Reykjavík. Íbúðin er með rúmgóðu alrými og útgengi á svalir til suðurs með svalalokun og fallegu útsýni út á sundin. Stæði fyrir framan hús með rafhleðslustöð og sérgeymsla á jarðhæð sem er 6,0 fermetrar að stærð.
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, gott alrými sem rúmar vel setustofu og borðstofu og baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Vesturbæ Reykjavíkur. Leikskóli, grunnskóli, sundlaug og íþróttasvæði KR í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta, ásamt kaffihúsi, í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Ægisíðuna.
Nánari lýsing:Forstofa: Með parketi á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð og með parketi á gólfi. Stofa rúmar borðstofu og setustofu. Gluggar til suðurs og austurs. Útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til suðurs, með svalalokun og fallegu útsýni út á sundin.
Eldhús: Með parketi á gólfi og góðri eldhúsinnréttingu. Electrolux eldavél og Electrolux uppþvottavél. Gluggi til austurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum, sturta, innrétting við vask og gluggi til austurs. Tenglar fyrir þvottavél/þurrkara.
Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðausturs.
Geymsla: Er 6,0 fermetrar að stærð og er staðsett á jarðhæð hússins.
Sameign er snyrtileg með steinteppi á stigagangi og flísum í ytri forstofu. Stórir gluggar til norðausturs sem hleypa inn góðri birtu inn í sameign hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is