Domusnova fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða þriggja herbergja enda íbúð við Maltakur 1a Um er að ræða 120,5 m2 enda íbúð á efri hæð í litlu 2ja hæða fjölbýli á vinsælum stað í Garðabænum við Maltakur 1a. Skipulag íbúðarinnar er gott, gengið er inn um sérinngangur inn í forstofu, til vi... Sýna meira
Domusnova fasteignasala kynnir fallega og vel skipulagða þriggja herbergja enda íbúð við Maltakur 1a Um er að ræða 120,5 m2 enda íbúð á efri hæð í litlu 2ja hæða fjölbýli á vinsælum stað í Garðabænum við Maltakur 1a. Skipulag íbúðarinnar er gott, gengið er inn um sérinngangur inn í forstofu, til vinstri er þvottahús. Frá forstofu er komið inn á herbergisgang, þaðan sem innangengt er í herbergi og hjónasvítu sem er með sér baðherbergi inn af. Eldhús, stofa- og borðstofa eru í opnu og björtu rými, með opinni skrifstofu sem er ekki í herbergjafjölda, en frá borðstofu er útgengt út á svalir sem snúa í suður. Annað baðherbergi með sturtu er staðsett á herbergisgangi. Rúmgóð geymsla skráð 14,4 m2 er staðsett í kjallara hússins. Næg bílastæði eru fyrir utan húsið, fjögur af þeim eru með aðgengi að rafhleðslu og tilbúið fyrir fleiri. Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2023 er kr. 77.700.000 Nánari lýsing: Forstofa: flísar á gólfi og fataskápur.Þvottahús: flísar á gólfi.Herbergi: parket á gólfi, fataskápur. Hjónaherbergi: parket á gólfi, fataskápar.Baðherbergi: inn af hjónaherbergi er fullbúið baðherbergi, með flísum á gólfi og veggjum, upphengdu salerni og sturtu/baðkari. Eldhús: parket á gólfi, gott vinnupláss, nýlegt spanhelluborð og bakaraofn.Stofa- og borðstofa: björt og rúmgóð borðstofa, frá henni er útgengt út á svalir sem snúa í suður. Í stofu er léttur veggur sem auðveldlega má taka niður.Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum, upphengt salerni og sturta. Geymsla: rúmgóð geymsla með möguleika á góðu hillu plássi. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla staðsett í sameign í kjallara hússins. Að sögn eiganda var allt parket á alrými, gang og herbergjum endurnýjað fyrir um fimm árum. Um er að ræða vel staðsetta eign í Akrahverfinu í Garðabæ í göngufæri við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og Hofstaðaskóla. Allar upplýsingar veitir Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf. í síma 665 8909 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.