Gimli fasteignasala og Kristján Gíslason kynna: Falleg 3ja herb. íbúð á 6. hæð í 8 hæða lyftuhúsi. Íbúðin snýr norður-suður og er mikið útsýni úr stofu og af svölum yfir borgina til suðurs. Úr eldhúsi og svefnherbergjum er útsýni til norðurs út á sjó, Viðey og Esjuna. Íbúðin er 77,4 fm að meðtalinni... Sýna meira
Gimli fasteignasala og Kristján Gíslason kynna: Falleg 3ja herb. íbúð á 6. hæð í 8 hæða lyftuhúsi. Íbúðin snýr norður-suður og er mikið útsýni úr stofu og af svölum yfir borgina til suðurs. Úr eldhúsi og svefnherbergjum er útsýni til norðurs út á sjó, Viðey og Esjuna. Íbúðin er 77,4 fm að meðtalinni 3,5 fm geymslu í kjallara. Bæði hús og íbúð hafa fengið gott viðhald síðustu árin og er m.a. nýtt parket á gólfum íbúðarinnar. Nánari upplýsingar veitir: Kristján Gíslason Löggiltur fasteignasali, í síma 691-4252 eða með tölvupósti NÁNARI LÝSING:Komið er inn á gang/hol með skápum. Til hægri er svefnherbergi með stórum fataskáp, lítð barnaherbergi með renni/harmonikuhurð og baðherbergi með sturtuklefa, hvítri vaskainnréttingu og flísum á gólfi og veggjum. Handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél. Inn eftir ganginum til hægri er eldhús, er með grárri og hvítri plastklæddri innréttingu, flísar milli skápa, frístandandi eldavél með keramik helluborði og borðkkrókur. Til vinstri er rúmgóð stofan, og þar er gengt út á 5,2 fm suður svalir. Í kjallara er 3,5 fm sérgeymsla, samleiginlegt þvottahús með sameiginlegum þvottavélum, þurrkherbergi og hjólageymsla. Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á húsi og íbúð á síðustu árum. Árið 2017 var húsið múrviðgert og málað auk þess sem skipt var um glugga og gler. Lyftan var endurnýjuð árið 2019 og búið er að endurnýja aðalrafmagnstöflu hússins. Árið 2023 var stigagangur málaður og teppalagður. Íbúðin hefur verið endurnýjuð að ýmsu leiti gegnum árin t.d. var settur sturtuklefi í stað baðkars, nýleg eldvarnarhurð er á íbúðinni og myndavéla-dyrasími. Þá er nýbúið er að setja fallegt harðparket á alla íbúðina. Nóg af bílastæðum er fyrir framan húsið og stutt í alla helstu þjónustu og samgönguæðar.Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.