Hraunhamar fasteignasala kynnir: Í hjarta Hafnarfjarðar. Afar fallegt og skemmtilegt tvílyft parhús á þessum frábæra stað við Hellisgerði og í göngufæri við miðbæ Hafnarfirði. Húsið er samkvæmt þjóðskrá 123,5 fm auk sérstæður bílskúr 39,7 fm samtals stærð því 163,2 fm.
Góð aðkoma og þrjú sérbílastæði fyrir framan húsið. Ath: Gengið er inn í húsið Hellisgötumegin. (gegnt Hellisgerði).Húsið skiptist m.a. þannig: Sérinngangur,
forstofa með skáp, flísar, hol, fallegt bjart
eldhús með ljósum innréttingum frá Kvik, góð tæki, gaseldavél, flísar á milli skápa, björt falleg
stofa/borðstofa, útgengt þaðan á
stóra verönd/suðurgarðinn.Fallegt
baðherbergi/snyrting (möguleiki að gera sturtuaðstöðu) nýleg falleg innrétting og nýlegt salerni, flísar, gluggi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Efri hæð: Fallegur stigi, hol, gott
hjónaherbergi með skáp og stórt
barnaherbergi með skáp, og annað gott
barnaherbergi. Öll herbergin er björt og falleg. Rúmgott
baðherbergi með nýlegri innréttingu og nýlegu upphengdu salerni, baðkar, flísar. (möguleiki að hafa sturtuaðstöðu)
Þrír kvistir eru á efri hæðinni sem gefa húsinu flottan blæ. Vandað harðparket og flísar á neðri hæð og gegnheilt parket á efri hæð.Garður er fallegur (hraunlóð) snýr að mestu í suður og er nánast allur timbur/verönd, hellur meðfram húsi að sunnanverðu líka. Á pallinum er góður geymsluskúr.
Bílskúr er rúmóður og bjartur, innkeyrsluhurð og gönguhurð. Tveir stórir gluggar.Samkvæmt upplýsingum frá seljenda þá er eignin þó nokkuð endurnýjuð, m.a. Eldhúsinnrétting ca
2010 2019 gluggar í bílskúr lagaðir
Gluggar málaðir að utan
2023-2024Gluggar málaðir að innan í húsi
2024Nýtt salerni á efri og neðri hæð
2024Ný baðinnrétting á efri hæð
2025 Nýtt parket
2025 neðri hæð
2025 gluggar lagaðir í stofu að hluta
Stigi málaður
2025Nýir gluggar í svefnherbergi í suður
2026Eldhús, stigagangur, svefnherbergi, baðherbergi niðri og gangur uppi málað
2025. Loft máluð uppi og baðherbergi niðri
2025.Skipt um báru á kvistum
2025Grindverk sett upp á milli húsa
2025Nýr ofn í litla barnaherbergi
2026Pallur olíuborin
2026Nýr þakpappír á geymsluskúr
2026 skúr pússaður og olíuborinn
Borið á pallinn fyrir framan hús og grindverk fyrir framan húsið
2026Nánari uppl gefur Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.