Fasteignasalan Hvammur 466-1600Keilusíða 2 íbúð 303 - Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) í góðu fjölbýli í Síðuhverfi - Stærð 74,6 m² Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, baðherbergi, þvottahús og tvö svefnherbergi. Sér rúmgóð geymsla er í kjallara.
Forstofa er með harðparketi á gólfi.
Stofa er björt með harðparketi á gólfi og þaðan er gengið út á góðar vestur svalir.
Eldhús er með nýrri innréttingu með hvítum neðri skápum og dökkum efri skápum. Innfelld uppþvottavél.
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi, fíbó plötum á hluta veggja og innréttingu með handlaug. Vegghengt wc, handklæðaofn og baðkar með sturtutækjum.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfum og í öðru þeirra er nýr fataskápur.
Þvottahús er með flísum á gólfi og opnanlegum glugga.
Sér geymsla í kjallara er rúmgóð með vegghillum, skráð 10,4 m².
Annað- Eldhúsi skv. upphaflegu skipulagi innan eignar hefur verið breytt í svefnherbergi og eldhús fært fram í opið rými með stofunni.
- Þak var endurnýjað í sumar (2026)
- Baðherbergi og eldhús endurnýjað (2026)
- Nýjar innihurðir og gólfefni (2026)
- Skipt hefur verið um rofa og rafmagnstengla (2026)
- Loftaklæðning endurnýjuð að hluta (2026)
- Íbúðin er nýmáluð að innan auk þess sem gluggar hafa verið málaðir.
- Innbú getur fylgt með við sölu eignar.
- Ljósleiðari er kominn inn.
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
- Vel staðsett eign með góðu útsýni, stutt í leik- og grunnskóla.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.