Björgvin Þór Rúnarsson lgf og Fasteignaland kynna eignina Iðufell 2 Íbúð 03030 er þriggja herbergja íbúð á 3. hæð til hægri og skiptist í anddyri, eldhús, bað, tvö svefnherberg, stofu og svalir. Sérgeymsla á 1. hæð. Þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð.Eignin er skráð 84,1 fm. Eignin er laus strax. E... Sýna meira
Björgvin Þór Rúnarsson lgf og Fasteignaland kynna eignina Iðufell 2 Íbúð 03030 er þriggja herbergja íbúð á 3. hæð til hægri og skiptist í anddyri, eldhús, bað, tvö svefnherberg, stofu og svalir. Sérgeymsla á 1. hæð. Þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð.Eignin er skráð 84,1 fm. Eignin er laus strax. Eignin er vel staðsett nálægt skóla, leikskóla og allri helstu verslun og þjónustu.Lýsing eignarÍbúð 03030 er þriggja herbergja íbúð á 3. hæð til hægri og skiptist í anddyri, eldhús, bað, tvö svefnherberg, stofu og svalir. Sérgeymsla á 1. hæð. Forstofa: Opin forstofa með harðparketi á gólfi. Stofa: Harðparket á gólfi og útgangi á yfirbyggðar svalir. Eldhús: Flísar á gólfi, einfaldar innréttingar. Baðherbergi: Flísalagt með baðkari. Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með stórum fataskáp. Stór gluggi sem hleypir inn mikilli birtu. Harðparket á gólfi. Herbergi: Með fataskáp og harðparketi á gólfi. Geymsla: 5,8 fm geymsla á jarðhæð. Sameign: Sameiginleg hjóla og vagnageymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi.Um húsiðHúsið er steinsteypt, kjallaralaust fjölbýlishús á sléttu landi, alls fjórar hæðir með hallandi járnvörðu risþaki úr timbri yfir steyptri loftplötu. Iðufell 2 telst eitt hús í húsasamstæðunni Iðufell 2-12 og snýr endum í vestur og austur. Svalir allra íbúða snúa í suður. Þrjár íbúðir eru á hverri hæð og miðlægt stigahús með gluggakvisti í þaki. Ein íbúð er á 1. hæð. Að auki eru á 1. hæð inngangur um tvö anddyri, annað á norðurhlið, hitt á suðurhlið, sameiginlegt þvottahús með þurrkherbergi fyrir hús nr. 2 og nr. 4, sorpgeymsla, hjóla- og vangageymsla, ásamt sérgeymslum hverrar íbúðar. Einn sameignlegur hitamælir er fyrir húsin nr. 2 og nr. 4 en sér rafmagnsmælar fyrir hverja íbúð, sér rafmagnsmælir er fyrir hvorn stigagang og sér rafmagnsmælir fyrir sameiginlegt þvottahús. Rafmagnskostnaður fyrir stigaganga og þvottahús skiptast jafnt milli íbúða. Um lóðLóð húsasamstæðunnar Iðufell 2-12 er alls 5.532 m2. Opin bílastæði á lóð eru í óskiptri sameign. Afmörkuð leiksvæði barna eru óskipt sameign skv. 8. grein. Kvaðir eru um vatnslögn, hitaveitustokk og 1,8 m háan vegg á suðurmörkum lóðar, sjá nánar eignaskiptayfirlýsingu.Um ástand séreignarHelstu atriði er varðar ástand séreignar og sjást við skoðun. Borðplata á eldhúsinnréttingu þarfnast lagfæringar. Gluggi í eldhúsi þarfnast viðgerðar sem og gluggi í hjónaherbergi. Handfang á svalahurð stendur á sér. Vinsamlega athugið að ekki er um endanlega upptalningu að ræða. Eignin er afhend í því ástandi sem hún er við skoðun.Um viðhald og endurbætur sameignarSamkvæmt fundargerð aðalfundar húsfélags Gyðu- Iðu- og Fannarfells, dags. 20. nóvember 2023, er stefnt á að hefja þakframkvæmdir nú á vormánuðum 2024. Tekið var tilboði Nýtt þak ehf. Hluti eignarinnar í framkvæmdakostnaði skv. tilbðinu er kr. 837.266,- en seljendi hefur þegar greitt kr. 356.646 og standa því eftir kr. 480.620,- mv. 1.3.2024. Samkvæmt yfirýsingu húsfélags frá Iðufelli 2 til 4 og Iðufelli 2 verður aðalfundur húsfélagsins 9. apríl næstkomandi. Þar stendur til að ræða stöðu lagna, útidyrahurðar og húsgjöld. Varðandi önnur atriði vegna framkvæmda, stöðu húsfélags og almennra upplýsinga um húsfélagið er væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér sérstaklega yfirlýsingu húsfélags og fylgigögn, þ.á.m. framangreinda fundargerð.Nánari upplýsingar veita:Björgvin Þór RúnarssonLöggiltur fasteigna- og skipasali | Löggiltur leigumiðlari | Eigandi