ALDA fasteignasala og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og vel skipulagða 98,8fm, 3. herbergja útsýnisíbúð með aukinni lofthæð og sérmerktu bílastæði í sameiginlegri bílageymslu að Holtsvegi 27, 210 Garðabæ. Lítið fjölbýli með 10 íbúðum í húsi byggðu 2018. Eignin skiptist í anddyri, tvö... Sýna meira
ALDA fasteignasala og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega og vel skipulagða 98,8fm, 3. herbergja útsýnisíbúð með aukinni lofthæð og sérmerktu bílastæði í sameiginlegri bílageymslu að Holtsvegi 27, 210 Garðabæ. Lítið fjölbýli með 10 íbúðum í húsi byggðu 2018. Eignin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi með þvottavélaaðstöðu, eldhús, stofu, rúmgóðar svalir, sérgeymslu og stæði í bílageymslu. Húsið er klætt að utan með álklæðningu og ál/tré gluggum þannig að húsið er viðhaldslétt. Á jarðhæð eru geymslur, bílageymslur, bílskúrar, hjóla- og vagnageymsla.. Glæsileg nýleg íbúð á einum besta og fallegasta stað á höfuðborgarsvæðinu, Urriðaholti í Garðabæ. Stutt í verslun þjónustu og óspillta náttúruna.Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða Fasteignamat fyrir árið 2024 er 75.050.000kr.Eignin Holtsvegur 27 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 250-0211, birt stærð 98,8fm. Þar af er geymsla 14,1fm. Svalir eru 9,3fm (ekki inni í birtum fermetrum).Nánari Lýsing: Forstofa: Tvöfalldur fataskápur. Flísar á gólfi.Baðherbergi: Flísar á gólfi og á hluta veggja. Rúmgóð sturta með glervegg, upphengt klósett og handklæðaofn. Baðinnrétting með vaski, spegli fyrir ofan vask og skápainnréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.Svefnherbergi I: Mjög rúmgott. Gott skápapláss. Fallegt útsýni út á Urriðaholtsvatn, gólfvöll, yfir Hafnarfjörðinn og til sjávar úr svefnherbergi.Svefnherbergi II: Barnaherbergi með fataskáp. Einnig hægt að nýta sem skrifstofuherbergi.Alrými: Samliggjandi eldhús og stofa. Bjart og opið með glugga á 3 vegu. Gólfsíðir gluggar í stofu með glæsilegu útsýni út á Urriðaholtsvatn, Heiðmörk, til fjalla, út á golfvöll, yfir Hafnafjörðinn og til sjávar.Svalir: Gólflötur 9,7fm. Snúa til suðaustur. Eru opnar frá suðaustri til norðvesturs. Sól stærstan hluta dags og fram að sólsetri. Stofa: Opin við eldhús. Rúmgóð og björt með fallegum gólfsíðum gluggum. Útgengt út á rúmgóðar sólríkar svalir. Fallegt útsýni úr stofu og af svölum. Eldhús: Opið við stofu. Innrétting með efri og neðri skápum. Flísar á milli skápa. Innbyggð tæki í innréttingu.Sérgeymsla: Rúmgóð geymsla í sameign á jarðhæð.Sérmerkt bílastæði í sameiginlegri bílageymslu fylgir eigninni. Fjarstýrsjálfvirkur bílskúrshurðaopnari.Góð aðkoma að húsinu. Sameiginleg bílastæði á bílaplani.Í sameign er sér geymsla og sameiginleg hjólageymsla.Umhverfið: Frábær staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. Í göngufæri er svo Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur .