Heima fasteignasala kynnir Haukahlíð 2 – Íbúð 418.
Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Ásett verð miðast við 75% sameignakaup.
Sameignarkaup — þú fjármagnar aðeins 75% af kaupverði: 63.675.000
Sameignarsamningur er undirritaður samhliða kaupsamningi.
Fáðu nánari upplýsingar á sölusíðu eignarinnar, þar sem þú færð aðgang að söluyfirliti og öðrum skjölum með rafrænum skilríkjum og getur gert tilboð beint. Sendu fyrirspurn á heimaf@heimaf.is eða hringdu í síma 583 2000. Hafðu samband og bókaðu skoðun.
3ja herbergja íbúð á 4. hæð. Íbúðin snýr inn í innri garð. Birt stærð er 76,4 fm þar af 7,2 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í opið anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með sérsmíðuðum innréttingum, raftækjum, blöndunartækjum og gólfefni. Sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema: Mjöll 2.
Nánari lýsing: Fataskápur í opnu anddyri. Gengið er inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu, 33,4 fm, með útgengi á suðursvalir inn í innri garð. Eldhús með eyju. Ljós eldhúsinnrétting, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa, blöndunartæki úr burstuðu stáli og innbyggður ísskápur. Hjónaherbergi er 12,2 fm með fataskápum og svefnherbergi 8,9 fm með fataskáp. Baðherbergi er 5,8 fm með „walk-in“ sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Leirljósar steinflísar á gólfi og veggjum, ljós innrétting, speglaskápur og blöndunartæki úr burstuðu stáli. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla í kjallara merkt 0103 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með samnýtingarfyrirkomulagi þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.
Um Hlíðarhorn
Hlíðarhorn er 3–5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 íbúðir, 2–5 herbergja. Hverri íbúð fylgja svalir, þaksvalir eða sérafnotareitur í innri garði, og íbúðirnar eru hannaðar með tilliti til náttúrulegrar birtu og nýtingar fermetra. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og sérstök áhersla er lögð á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd álklæðningum í mismunandi litum ásamt við, með gluggum úr ál/við.
Hlíðarhorn er í 102 Reykjavík, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta við fætur Öskjuhlíðar. Þjónusta, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða og stórir vinnustaðir eru í göngu- og hjólafæri.
Bílakjallari
Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er samnýttur samkvæmt deiliskipulagi. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi. Ákveðnum íbúðum hefur verið úthlutað sérmerktum bílastæðum með föstum leigusamningum; kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallarans samhliða kaupum.
Nánari upplýsingar
Á www.hlidarhorn.is má sjá allar íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni. Skilalýsing seljanda ásamt upplýsingum um hönnun og byggingu er einnig á heimasíðu verkefnisins.
Athugið
Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.
Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt, 0,3% af endanlegu brunabótamati.
Auk kaupverðs greiðir kaupandi:
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.




Kíktu á dæmið með Aurbjörgu
| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 22.08.2026 Nánar | 76,4 m² | 833.442 kr. | 63.675.000 kr. |
0516 ![]() | 4 | 114,50 m² | Tilboð 31. ágúst 2026 | - - |
0418 ![]() | 3 | 76,40 m² | 63.675.000 kr. 22. ágúst 2026 | - - |
0118 ![]() | 2 | 55,10 m² | 49.425.000 kr. 4. júní 2026 | - - |
0119 ![]() | 3 | 110,00 m² | 108.900.000 kr. 20. ágúst 2026 | - - |
0515 ![]() | 3 | 80,10 m² | 74.175.000 kr. 4. júní 2026 | - - |
0417 ![]() | 4 | 122,60 m² | 126.900.000 kr. 22. júlí 2026 | - - |
0320 ![]() | 3 | 78,90 m² | 81.900.000 kr. 1. september 2026 | - - |