Eignaland kynnir í einkasölu Hásteinsvegur 18 , 825 Stokkseyri.- Einbýlishús við fjöruna á Stokkseyri á frábærum stað.
- Eignin býður upp á fjögur svefnherbergi og hentar vel fyrir fjölskyldur sem vilja njóta sjávarútsýnis og rólegs umhverfis.
- Samkvæmt skráningu HMS er eignin 192 fm að stærð, þar af er bílskúr 46 fm.
- Mikið hefur verið endurnýjað á eigninni á undanförnum árum, eins og nánar er rakið hér að neðan.
Nánari upplýsingar veitir Jens Magnús, löggiltur fasteignasali, í síma 893-1984 eða á netfanginu magnus@eignaland.is.
Nánari lýsingForstofa: Flísar á gólfi og stór fataskápur með speglahurðum.
Eldhús: Parket á gólfi og rúmgóð innrétting.
Þvottahús: Rúmgott þvottahús inn af eldhúsi með sérinngangi.
Stofa: Björt og opin stofa með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á sólpall og í bakgarð.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og að hluta á veggjum. Hvítlökkuð innrétting og „walk-in“ sturta með glervegg.
Gestasalerni: Inn af forstofu. Vegghengt salerni og flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápar.
Herbergi 2: Herbergi sem áður voru tvö, en búið er að opna á milli þeirra. Parket á gólfi.
Herbergi 3 og 4: Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr sem hefur nýlega verið málaður.
Stór lóð sem liggur að einni fallegustu fjöru landsins.
Pallur/verönd er á baklóðinni og býður upp á skjólgott útisvæði.
Framkvæmdir og endurbætur2018: Baðherbergi endurnýjað.
2020: Nýir gluggar, nýjar útihurðir og ný bílskúrshurð.
2021: Ný eldhúsinnrétting sett upp.
2021: Vatnslagnir frá þvottahúsi yfir í eldhús endurnýjaðar.
2024-2025: Húsið múrað og málað að utan. Ytra byrði hússins einnig húðað með sérstöku verndarefni.
2025: Ný rafmagnstafla sett upp í bílskúr og bílskúrinn málaður.
Virkilega áhugaverð eign á einstökum stað sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.is
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.