Nýtt á skrá! Háaleitisbraut 65 Reykjavík - Vel skipulagt raðhús á einni hæð með bílskúr á frábærum stað!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir vel skipulagt 183,1 fermetra raðhús á einni hæð með þremur til fjórum svefnherbergjum á fjölskylduvænum stað í lokuðum botnlanga við Háaleitisbraut í Reykjavík. Eignin skiptist í 156,4 fermetra íbúðarrými og 26,7 fermetra sérstæðan bílskúr.
Skjólgóður bakgarður til suðurs sem skiptist í viðarverönd næst húsi þar sem tyrfð lóð og fallegur gróður tekur við.
Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, 3-4 svefnherbergi (einfalt að bæta við fjórða svefnherbergi eins og upphaflegar teikningar gera ráð fyrir), rúmgóðar stofur, eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi, geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing:Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Gestasnyrting: Með flísum á gólfi og veggjum. Salerni og vaskur.
Þvottaherbergi: Er rúmgott með flísum á gólfi, sturtu, vinnuborði, vask og glugga til norðurs.
Eldhús: Með kork á gólfi, hvítri eldhúsinnréttingu, AEG stál bakaraofni, Siemens helluborði og tengi fyrir uppþvottavél. Borðkrókur og gluggi til norðurs.
Borðstofa: Með parketi á gólfi og aukinni lofthæð.
Setustofa: Með parketi á gólfi, arinn og gluggum til suðurs og vesturs. Útgengi á verönd í bakgarði.
Verönd: Snýr til suðurs og er útgengi úr setustofu.
Svefngangur: Með parketi á gólfi.
Svefnherbergi I: Er stórt (var áður tvö barnaherbergi eins og upphaflegar teikningar gera ráð fyrir), parketi, skápum og glugga til suðurs.
Svefnherbergi II: Með parketi, skápum, glugga til suðurs og útgengi á verönd til suðurs.
Svefnherbergi III (Hjónaherbergi): Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Baðherbergi: Endurnýjað fyrir u.þ.b. 10 árum síðan. Með flísum á gólfi og veggjum. Gólfhiti. Flísalögð sturta með gleriþili, innrétting við vask með steini á borðum og upphengt salerni. Gluggi til norðurs.
Geymsla: Með máluðu gólfi og hillum.
Bílskúr: Er 26,7 fermetrar að stærð. Málað gólf og gluggar til suðurs.
Um að er ræða frábæra staðsetningu miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu. Leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli í göngufjarlægð. Stutt í allar helstu stofnæðar.Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.