Landmark fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali kynna fallega fjögurra herbergja 79,5 m2 íbúð á annarri hæð við Dalaland 5 í Reykjavík. Eigninni tilheyrir um 4 m2 geymsla í kjallara sem er ekki talin vera inn í skráðum fermetrum. Íbúðin er afar snyrtileg og vel skipulögð með þ... Sýna meira
Landmark fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali kynna fallega fjögurra herbergja 79,5 m2 íbúð á annarri hæð við Dalaland 5 í Reykjavík. Eigninni tilheyrir um 4 m2 geymsla í kjallara sem er ekki talin vera inn í skráðum fermetrum. Íbúðin er afar snyrtileg og vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, uppgerðu baðherbergi og eldhúsi. **Vinsamlegast boðið komu á opið hús hjá eða í síma 823-2800**Nánari lýsing: Hol er með fataskáp, parket á gólfi. Framan við útidyr á stigapalli í sameign er rúmgóður læstur skápur.Eldhús er með hvítri innréttingu, bakarofni í vinnuhæð, keramik helluborði, gufugleypi yfir og tengi er fyrir uppþvottavél og ísskáp. Borðkrókur er í eldhúsi, parket á gólfi. Barnaherbergin eru tvö, parket á gólfi. Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskáp, parket á gólfi. Baðherbergi hefur verið endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, hvítri baðinnréttingu, stórum spegli með innfelldri LED lýsingu og Walk inn sturtu með gler skilrúmi. Lagnir eru til staðar fyrir þvottavél. Stofa og borðstofa er björt með parketi á gólfi, þaðan er útgengi á afar skjólgóðar suðursvalir. Sér geymsla tilheyrir eigninni, stasett í kjallara. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara með sér tengi fyrir þvottavél. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Yfirstandandi eru framkvæmdir á vegum húsfélags, Þakjárn endurnýjað, múrviðgerðir, málun ofl., nánari upplýsingar í söluyfirliti. Viðhaldssaga húsfélags: Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar og dren lagt í kringum húsið ásamt því að gerðar voru múrviðgerðir á norðurhlið og austurgafl hússins og það málað. Einnig var skipt um einhver gler á norðurhlið hússins (ekki í þessari íbúð) og öll stétt og aðkoma endurnýjuð að fullu og hiti lagður í stétt. Suðurhlið og vesturgafl voru lagfærðir árið 2010 (múrviðgerðir, málað og gler endurnýjað að hluta). Þvottahús og hjólageymsla flísalagt árið 2013. Stigagangur málaður og teppi djúphreinsað í desember 2021. Allar nánari upplýsingar veita:Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali sími 823-2800Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali sími 823-2600Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA