Fasteignasalan TORG kynnir: Björt, falleg og einstaklega rúmgóð 5-6 herbergja endaíbúð á 5.hæð með bílskúr á þessum eftirsótta stað, í Kórahverfi Kópavogs. Um er að ræða eign sem er skráð 191,8 fm. þar af bílskúr skráður 24,9 fm. Eignin skiptist í fjögur-fimm svefnherbergi, stofu, borðstofu, svalir,... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Björt, falleg og einstaklega rúmgóð 5-6 herbergja endaíbúð á 5.hæð með bílskúr á þessum eftirsótta stað, í Kórahverfi Kópavogs. Um er að ræða eign sem er skráð 191,8 fm. þar af bílskúr skráður 24,9 fm. Eignin skiptist í fjögur-fimm svefnherbergi, stofu, borðstofu, svalir, sjónvarpshol, eldhús, þvottaherbergi, baðherbergi og sér bílskúr. Búið er að útbúa skrifstofu sem notast sem auka svefnherbergi Göngufæri er í verslun, skóla og leikskóla. Í hverfinu er Kórinn íþróttamiðstöð HK, fallegar gönguleiðir, útivistarsvæði, hesthús og golfvöllur. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar, fasteignasali í GSM 844-6516 eða og/eða Sigurður lgfs GSM 898-6106 eða Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í góða forstofu með flísum á gólfi og loftháum fataskápum. Flísar á gólfi.Þvottaherbergi: Þvottaherbergi er innan íbúðar með flísum á gólfi, góðri hvítri innréttingu með skápum. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara.Svefnherbergi: Fjögur - fimm rúmgóð svefnherbergi með eikarparketi á gólfum og háum fataskápum. Hjónaherbergið er með afstúkuðu fataherbergi. Búið er að útbúa auka herbergi sem eigendur nota sem skrifstofu.Stofa & borðstofa: Rúmgott og bjart alrými sem rúmar bæði stofu og borðstofu með eikarparketi á gólfi. útgengt frá alrými út á suðursvalir. Stórir gluggar snúa til suðurs og vesturs.Sjónvarpsherbergi: Rúmgott sjónvarpsherbergi með eikarparketi á gólfi.Eldhús: Eldhúsið er í opnu góðu alrými en opið er yfir í borðstofu og stofu. Innréttingin er með granítborðplötu og eru fallegir neðri og efri skápar úr eik. Tengi er fyrir uppþvottavél og ísskáp.Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með baðkari með sturtuaðstöðu og upphengd salerni. Eikar innrétting með skúffum undir vaskaborði og dökkri borðplötu. Flísalagt með ljósum fallegum flísum á gólfi og á veggjum. Geymsla: Sérgeymsla í sameign. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.Bílskúr: Sérbílskúr fylgir eigninni. Niðurlag: Falleg fjölskylduíbúð með bílskúr og fjórum -fimm svefnherbergjum á eftirsóttum stað í Kórahverfinu þar sem stutt er í verslun, skóla, íþróttasvæði, hesthús, gönguleiðir og útivistarsvæði. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar, fasteignasali í GSM 844-6516 eða og/eða Sigurður lgfs GSM 898-6106 eða Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram komaí söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegirog sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.