Kjöreign fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnirKjöreign fasteignasala kynnir : Falleg og björt 4 herbergja endaíbúð á þriðju hæð með tvennum svölum við Álfheima 72. Birt stærð er 121,5 fm. Íbúðin skiptist í gott hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og borðstofu/... Sýna meira
Kjöreign fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnirKjöreign fasteignasala kynnir : Falleg og björt 4 herbergja endaíbúð á þriðju hæð með tvennum svölum við Álfheima 72. Birt stærð er 121,5 fm. Íbúðin skiptist í gott hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og borðstofu/stofu. Tvennar svalir, aðrar út frá stofu og hinar út frá hjónaherbergi. Í sameign er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymslaNánari lýsing :Komið er inn í gott hol. Þar er stór og góður fataskápur. Eldhús er með lakkaðri eldhúsinnréttingu. Nýlegt helluborð og bakaraofn. Nýr vaskur og blöndunartæki. Uppþvottavél og ísskápur frá Whirlpool fylgja með. Góður eldhúskrókur og þar eru innfelldir upprunalegir skápar. Borðstofa og stofa eru með gluggum á tvenna vegu. Úr stofu/borðstofu er gengið út á suðursvalir. Innaf holi er svefnherbergisgangur með þremur svefnherbergjum. Rúmgott hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp. Úr hjónaherberginu eru litlar vestursvalir með kvöldsól. Ennfremur eru á ganginum tvö rúmgóð barnaherbergi. Baðherbergið er flísalagt með baðkari og sturtuaðstöðu. Nýleg innrétting, vaskur og blöndunartæki. Inn á svefnherbergisganginum er jafnframt snyrtilegt þvottahús og innbyggður línskápur. Nýlegt parket er á íbúðinni fyrir utan baðherbergi og þvottahús. Einnig eru nýjar innfelldar hurðir frá Birgisson.Húsið er í góðu standi eftir gagngerar endurbætur ma. múrviðgerðir, málun, frárennslislagnir, steyptar nýjar tröppur o.fl. Stigagangur snyrtilegur og sameignin til fyrirmyndar. Leiktæki er fyrir börn í bakgarði. Í sameigninni er geymsla íbúðar, sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla.Bílastæði eru í óskiptri sameign úti á lóð. Nóg er af bílastæðum, bæði við Álfheima og á milli húss og TBR. Þau stæði tilheyra eingöngu þessu húsi. Þar hefur húsfélagið láta koma fyrir hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbílaeigendur hússins.Eigninni fylgir byggingarréttur að einum bílskúr á bílastæðalóðStærðir: íbúð 114,2 og geymsla 7,3 samtals 121,5 fmÍbúðin er miðsvæðis í borginni í jaðri Laugardals og stutt er í alla þjónustu. Göngustígur er í skóla, stutt í leikskóla, verslun, veitingastaði og öflugt barna- og unglingastarf TBR og Þróttar svo eitthvað sé nefnt. Þetta er vel skipulögð og góð eign miðsvæðis í borginni.Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða . Vinsamlegast pantið skoðunartíma.Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 Davíð Karl Wiium lögfræðingur og lögg. fasteignasali gsm. 847-3147 Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040 eða Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 eða Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða Davíð Karl Wiium lögfræðingur og lögg. fasteignasali gsm. 847-3147 eða Má bjóða þér frítt verðmat á þína fasteign án skuldbindingar?Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram komaí söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegirog sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.