Domusnova hefur fengið í einkasölu rúmgóða þriggja til fjögurra herbergja íbúð við Æsufell, ásamt bílskúr, samtals 109,6fm skv. skráningu Þjóðskrár. Íbúðin er með svalir til vesturs með stórfenglegu útsýni. 18,3fm bílskúr fylgir íbúðinni (er á sér fastanúmeri) ásamt geymslu (4,9fm) og aðgangi að fry... Sýna meira
Domusnova hefur fengið í einkasölu rúmgóða þriggja til fjögurra herbergja íbúð við Æsufell, ásamt bílskúr, samtals 109,6fm skv. skráningu Þjóðskrár. Íbúðin er með svalir til vesturs með stórfenglegu útsýni. 18,3fm bílskúr fylgir íbúðinni (er á sér fastanúmeri) ásamt geymslu (4,9fm) og aðgangi að frystiplássi. Íbúðin er laus við kaupsamning. Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, útivistarsvæði og stutt að fara á stofnbrautir útúr bænum. Elliðaárdalurinn er í göngufæri og stutt í Elliðavatn. Þegar komið er inní íbúðina er baðherbergi með sturtu og ágætri innréttingu á vinstri hönd. Næst vinstra megin er hjónaherbergi en hægra megin við það er annað herbergi. Hægra megin frá inngangi er stórt opið rými sem geymir stofu, borðstofu, eldhús og sjónvarpshol. Mögulegt væri að bæta við herbergi og minnka opna rýmið. Í sameign er geymsla og frystiaðstaða. Bílskúrinn sem fylgir er um 18fm að skráðri stærð en íbúðin er 91,3fm með geymslunni sem er skráð 4,9fm. Stofan er rúmgóð með mikilfenglegu útsýni í vestur. Skipt hefur verið um glugga og/eða gler. Útgengt er á flísalagðar svalir hvaðan er afar fallegt útsýni. Sama parket er á öllu rými nema herbergjum og baðherbergi.Eldhús er með innréttingu sem var endurnýjuð fyrir allnokkrum árum en lítur vel út, með granít borðplötu en frágangi er ábótavant að hluta, athugið að skipulagi eldhúss var breytt og er það ekki í samræmi við teikningu.. Sjónvarpshol er í sama rými og stofan og er þar niðurtekið loft en lýsing virkar ekki. Hjónaherbergi er rúmgott (13,6fm skv. teikningu) með skápum, gólfefni er ekki nýlegt.Herbergi er ágætlega stór með eldra gólfefni.Baðherbergi hefur verið endurnýjað fyrir allnokkrum árum og er þar sturta og ágætis innrétting. Flísar. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.Hol er með sama parket og stofa/eldhús og er þar ágætur klæðaskápur.Bílskúr er nálægt inngangi og er hann án vatns en rafmagn er í honum. Bílskúrinn er með sér-fastanúmeri og er hann skráður hjá Þjóðskrá 18,3fm.Skipt hefur verið um alla ofna í eigninni en eftir er að ganga frá ummerkjum um skiptin. Skipt hefur verið um gler eða glugga í allri íbúðinni fyrir nokkrum árum. Í sameign sem lítur vel út og virðist vel hugsað um hana, er geymsla, skráð 4,9fm og frystigangur með sérgeymsluhólfi. Vegna mikillar sölu vantar mig eignir á skrá smellið hér til að fá verðmat án skuldbindingaNánari upplýsingar veita:Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / Skrifstofa / s.527-1717 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.