Samanburður á
sparnaðarreikningum

Sláðu inn hvað þú átt og hvað þú getur lagt fyrir. Við reiknum hvað hver reikningur skilar þér.

50.000 kr./mán · 3 ár
27 af 65 reikningum passa

Niðurstöður

27 af 65 reikningum passa. Þú leggur inn samtals 2.300.000 kr. á 3 árum. Besti reikningurinn skilar þér 2.582.943 kr.

Þú leggur inn samtals 2.300.000 kr. á 3 árum. Besti reikningurinn skilar þér 2.582.943 kr.

Eftir 22% fjármagnstekjuskatt. Munurinn á besta og lakasta reikningi í listanum er 281.275 kr.

Vextir uppfærðir 9.9.2026

Þessi tafla segir þér ekki hvar þú ættir að spara. Hún sýnir hvað hver reikningur skilar þér út frá þínum forsendum, m.v. auglýsta vexti á uppfærsludegi. Vextir eru breytilegir og bankar geta breytt þrepum og skilmálum án fyrirvara.

Spurt og svarað

Hvernig reiknið þið út lokaupphæðina?

Við leggjum upphafsupphæðina inn í byrjun og mánaðarlega sparnaðarupphæð í byrjun hvers mánaðar. Við umreiknum auglýsta ársvexti í virka ársvexti út frá vaxtafærslutíðni reikningsins og notum samsvarandi mánaðarvexti í útreikningnum. Þetta er nálgun á raunverulegri vaxtafærslu.

Sé fjármagnstekjuskattur dreginn frá eru 22% dregin af vöxtum og verðbótum mánaðarlega, svo minna stendur eftir til að ávaxtast. Frítekjumark vaxtatekna er ekki tekið með.

Hvað þýðir vaxtafærsla?

Vaxtafærsla segir til um hversu oft vextir eru færðir á reikninginn. Tíðnin getur haft áhrif á vaxtavexti. Í samanburðinum umreiknum við vextina í samsvarandi mánaðarvexti og reiknum með þeim í hverjum mánuði.

Hvernig virkar vildarþjónusta?

Vildarkjör eru ekki álag sem leggst á alla reikninga, heldur sérreikningar sem eru bundnir stigi hjá bankanum þínum (Stig 1 til 3 og Premía hjá Arion, Klettur til Tinds hjá Íslandsbanka, Vild 2 og Vild 3 hjá Landsbankanum). Þú velur þitt stig undir forsendunum og þá birtast aðeins þau vildarkjör sem þú átt rétt á.

Hvað þýða vaxtaþrepin?

Margir reikningar bera hærri vexti eftir því hversu há innistæðan er. Við sýnum vextina sem gilda fyrir innistæðuna í upphafi, og útreikningurinn fylgir innistæðunni upp þrepin ef hún vex yfir þrepamörk á tímabilinu. Alla þrepatöfluna sérðu þegar þú opnar röðina.

Af hverju eru verðtryggðir reikningar með í sömu töflu?

Til þess að verðtryggðir og óverðtryggðir reikningar séu sambærilegir umreiknum við raunvexti í nafnvexti út frá verðbólguforsendunni þinni. Sjálfgefið er nýjasta verðbólgumæling; þú getur breytt henni undir forsendunum. Vextir verðtryggðra reikninga eru sýndir sem nafnvextir að meðtalinni verðbólgu þegar hægt er, annars sem raunvextir.

Hvað gerist ef ég þarf peninginn fyrr?

Reikningar með lengri bindingu eða úttektarfyrirvara en tímabilið sem þú valdir falla sjálfkrafa út úr listanum. Þess vegna fækkar valkostum þegar þú styttir tímabilið.

Eru vextirnir uppfærðir?

Vextirnir eru auglýstir vextir bankanna eins og þeir voru síðast staðfestir. Dagsetningin er neðst í töflunni. Vextir eru breytilegir og bankar geta breytt þrepum og skilmálum án fyrirvara.

Aurbjörg finnur tækifæri í fjármálum heimilisins
Láttu Aurbjörgu standa vaktina og hjálpa þér að taka betri ákvarðanir í fjármálum.
Aurbjörg
Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða þig við að taka upplýstari og betri ákvarðanir í fjármálum.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2018-2026 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík
TikTokFacebookInstagram