Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn á ábyrgan og umhverfisvænan hátt til allra landsmanna auk þess að framleiða heitt vatn. ON gætir hagsmuna auðlinda landsins og viðskiptavina með sjálfbærni að leiðarljósi. Við styðjum við nýsköpun, ábyrga nýtingu auðlindarinnar og flýtum fyrir orkuskiptunum með minna vistspori. ON er frábær valkostur þegar kemur að því að velja rafmagn fyrir heimilið, fyrirtækið og rafbílinn. Við veitum persónulega og snarpa þjónustu með áherslu á að leysa málin hratt og örugglega.
ON hefur mælst hæst meðal fyrirtækja á raforkusölumarkaði í Íslensku ánægjuvoginni síðustu sex ár!
Viðskiptavinir með heimilisrafmagn hjá ON og ON appið/lykil fá betri kjör á hleðslustöðvum ON
Kynntu þér Orkuvísi ON og tryggðu þér hagstæðara raforkuverð á ákveðnum tímum sólarhrings. https://www.on.is/heimilisrafmagn
Við rekum þétt net hleðslustöðva á Íslandi og höfum leitt orkuskiptin í samgöngum frá upphafi.
Við bjóðum upp á aðstoð í síma allan sólarhringinn.
Við bjóðum upp á heimahleðslu í áskrift og fyrirtækjahleðslu í áskrift.
Eigendur Orkuveitunnar, móðurfélags ON eru Reykjavíkurborg, Akranes og Borgarbyggð.