Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

Samtryggingardeild SL Lífeyrissjóður

SL líferissjóður státar af einni bestu langtímaávöxtun íslenskra lífeyrissjóða. Sjóðurinn er ábyrgur fjárfestir og hefur aldrei þurft að skerða lífeyrisgreiðslur sinna rétthafa. Gæði og öryggi eru í fyrirrúmi hjá sjóðnum og er hann eini lífeyrissjóður landsins sem er vottaður samkvæmt alþjóðlegum gæða-, upplýsingaöryggis- og umhverfisstöðlum.

SamanburðurSL Lífeyrissjóður
Tegund
Samtrygging
Aðild
Allir
Hlutfall samtryggingar sem má ráðstafa í séreign
Hlutfall launa í séreign
0,0 - 3,5%
Tilgreind séreign
Tryggingafræðileg staða
-10%
10%
Mjög veik
-10% eða minna
Veik
-10% til -3,5%
Hófleg
-3,5% til 3,5%
Sterk
3,5% til 10%
Mjög sterk
10% eða meira
Raunávöxtun
-1%
5.9%
Samsetning eignasafns
Skráð skuldabréf
41,5%
Óskráð skuldabréf
0,3%
Skráð hlutabréf og sjóðir
41,9%
Óskráð hlutabréf og sjóðir
15,9%
Eignir í erlendum gjaldmiðlum
Eignir í erl. gjaldmiðlum
46,0%
Eignir í ísl. krónum
54,0%
Virkir meðlimir og lífeyrisþegar
Samtals
28.131
Virkir meðlimir
20,0%
Pensioners
80,0%
Skipting lífeyrisgreiðslna
Ellilífeyrir
83,0%
Örorkulífeyrir
10,5%
Makalífeyrir
6,3%
Barnalífeyrir
0,2%
Lífeyrisgreiðslur eftir mismunandi hópum. Hærra hlutfall örorku- eða makalífeyrisgreiðslna getur bent til meiri langtímaskuldbindinga, sem getur haft áhrif á fjárhagslegt jafnvægi og sjálfbærni sjóðsins.
Efnahagur og fjársteymi
Hrein eign til greiðslu lífeyris
287Ma kr.
Hrein iðgjöld
-4Ma kr.
Lífeyrisbyrði
156,9%
Þetta yfirlit sýnir hvernig fjárhagur lífeyrissjóðsins stendur gagnvart framtíðarskuldbindingum. Það gefur innsýn í hve mikið af hreinni eign er tiltækt til að standa undir lífeyrisgreiðslum, hversu mikið kemur inn í sjóðinn í hreinum iðgjöldum, og hlutfall lífeyris og iðgjalda í formi lífeyrisbyrði.

Aðild

Aðild að sjóðnum er öllum opin.

Ellilífeyrir

Mánaðarlegur ellilífeyrir er greiddur frá 67 ára aldri til æviloka en sjóðsfélagi getur flýtt lífeyristöku til 60 ára eða seinkað til allt að 80 ára.

Örorkulífeyrir

Sjóðfélagi sem ekki hefur náð 67 ára aldri á rétt á örorkulífeyri verði hann fyrir orkutapi vegna sjúkdóms eða slyss, hafi hann greitt iðgjöld í lífeyrissjóð í a.m.k. 24 mánuði. Örorkulífeyrir er greiddur í samræmi við áunnin réttindi fyrir orkutap. Skilyrði fyrir greiðslu örorkulífeyris eru að orkutapið sé meira en 50% að mati trúnaðarlæknis, að það vari í sex mánuði eða lengur og valdi tekjuskerðingu.

Til þess að eiga kröfu til framreiknaðra réttinda þarf sjóðfélagi að hafa greitt ákveðið lágmarksiðgjald til sjóðsins í a.m.k. þrjú af síðustu fjórum árum og þar af sex af síðustu tólf mánuðum. Ýmis önnur skilyrði eru fyrir rétti til framreiknings, sbr. samþykktir sjóðsins.

Makalífeyrir

Makalífeyrisréttindi eru hverju sinni 50% af elli- eða örorkulífeyrisréttindum sjóðfélagans, hvort sem gefur hærri rétt við fráfall.

Makalífeyrir er greiddur ævilangt út á réttindi sem eru tilkomin fyrir 1. janúar 2006. Réttindi sem eru tilkomin eftir 1. janúar 2006 eru greidd út að lágmarki í 48 mánuði ásamt 50% í 36 mánuði.

Auk áunninna réttinda kann maki að eiga rétt á framreikningi. Framreikningsreglur eru þær sömu og í örorkulífeyri. Ef réttur er til framreiknings myndast einnig réttur til barnalífeyris.

Makalífeyrir fellur niður ef makinn gengur í hjónaband á ný eða stofnar til sambúðar eða staðfestrar samvistar.

Barnalífeyrir

Barnalífeyrir greiðist við andlát foreldris/forráðamanns vegna barna, stjúpbarna og fósturbarna til 22 ára aldurs. Réttur til barnalífeyris er einnig til staðar hafi foreldri/forráðamaður orðið fyrir orkutapi og sé á örorkulífeyri.

Fullur barnalífeyrir vegna fráfalls foreldris/forráðamanns er kr. 26.187 á mánuði og fullur barnalífeyrir vegna örorku er kr. 19.204 á mánuði. Báðar upphæðirnar taka breytingu um hver mánaðamót í hlutfalli við breytingu á vísitölu neysluverðs.

Lánaréttindi

Lánaréttindi hefur sá sjóðfélagi sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins fyrir sex af síðustu tólf mánuðum eða hefur 36 mánaða iðgjaldasögu hjá sjóðnum.

Aurbjörg finnur tækifæri í fjármálum heimilisins
Láttu Aurbjörgu standa vaktina og hjálpa þér að taka betri ákvarðanir í fjármálum.
Aurbjörg
Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða þig við að taka upplýstari og betri ákvarðanir í fjármálum.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2017-2026 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík
TikTokFacebookInstagram