

A-deild er megindeild LSR, eignamesta lífeyrissjóðs landsins, og veitir víðtæk eftirlauna-, örorku- og maka-/barnalífeyrisréttindi. Deildin er opin öllum sem fá laun skv. kjarasamningum BHM, BSRB, KÍ og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Skilyrði fyrir aðild að A-deild er að starfa samkvæmt kjarasamningum einhvers af
stéttarfélögum opinberra starfsmanna. Stéttarfélög sem veita aðild að A-deild LSR eru:
→ Aðildarfélög BSRB
→ Aðildarfélög BHM
→ KÍ
→ Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sé ofangreint skilyrði uppfyllt geta launagreiðendur sem ekki teljast opinberir aðilar sótt um
að greiða í A-deild fyrir starfsfólk sitt.
Mánaðarlegur ellilífeyrir er greiddur frá 67 ára aldri til æviloka en sjóðsfélagi getur flýtt lífeyristöku til 60 ára eða seinkað til allt að 80 ára.
Til öðlast rétt á greiðslu örorkulífeyris þarf trúnaðarlæknir sjóðsins að meta örorku a.m.k. 40% og þarf hún að hafa staðið yfir í þrjá mánuði eða lengur.
Skilyrði fyrir framreikningi er að sjóðfélagi hafi:
→ Greitt lágmarksgjald til sjóðsins í a.m.k. þrjú af síðustu fjórum almanaksárum og greitt iðgjald í a.m.k. sex mánuði af síðustu tólf mánuðum fyrir orkutapið.
→ Ekki orðið fyrir orkutapi sem rekja megi til ofnotkunar áfengis, lyfja eða fíkniefna.
→ Óskertur makalífeyrir er að lágmarki greiddur í 36 mánuði og 50% makalífeyrir í 24 mánuði til viðbótar.
→ Fjárhæð óskerts makalífeyris er helmingur af áunnum lífeyrisréttindum sjóðfélaga
→ Hafi makinn barn yngra en 22 ára á framfæri sínu, sem sjóðfélaginn hafði áður á framfæri sínu, skal fullur makalífeyrir greiddur fram að 22 ára aldri yngsta barnsins.
Réttur til makalífeyris fellur niður ef makinn gengur í hjónaband á ný eða stofnar til sambúðar
sem jafna má til hjúskapar.
→ Börn sjóðfélaga sem falla frá eiga rétt á barnalífeyri vegna andláts til 22 ára aldurs.
→ Upphæð fulls barnalífeyris vegna andláts: 36.481 kr. á mánuði
→ Upphæð fulls barnalífeyris vegna örorku: 27.361 kr. á mánuði
Skilyrði er að hafa greitt iðgjald til LSR á síðustu 5 árum. Fleiri gætu átt lánsrétt, nánar á vef LSR.