

Lífeyrissjóður verzlunarmanna er stærsti opni lífeyrissjóður landsins. Hann hefur skilað góðri langtímaávöxtun og hefur hæsta hlutfall erlendra eigna lífeyrissjóða. Sjóðurinn sameinar öryggi, sveigjanleika og ábyrgð í fjárfestingum, með það að markmiði að tryggja traustan lífeyri fyrir alla aldurshópa.
Aðild að sjóðnum er öllum opin.
Mánaðarlegur ellilífeyrir er greiddur frá 67 ára aldri til æviloka en sjóðsfélagi getur flýtt lífeyristöku til 60 ára eða seinkað til allt að 80 ára.
Sjóðfélagi, sem ekki er orðinn 67 ára og verður fyrir orkutapi á rétt á örorkulífeyri úr sjóðnum í samræmi við áunnin réttindi fram að orkutapi, enda hafi hann greitt í lífeyrissjóð í samtals 24 mánuði og sannanlega orðið fyrir tekjuskerðingu af völdum orkutapsins. Örorkulífeyrir er greiddur ef sjóðfélagi er metinn a.m.k. 50% öryrki af trúnaðarlækni sjóðsins.
Skilyrði fyrir framreiknuð réttindi:
→ Hefur greitt iðgjöld til sjóðsins a.m.k. þrjú af undanfarandi fjórum almanaksárum og a.m.k. 178.435 kr. (220.765 kr.) hvert þessara þriggja ára. Fjárhæðin breytist í byrjun hvers árs í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar miðað við 513,0 stig í janúar 2022.
→ Hefur greitt iðgjald til sjóðsins a.m.k. 6 mánuði á undanfarandi 12 mánuðum.
→ Hefur ekki orðið fyrir orkutapi, sem rekja megi til ofnotkunar áfengis, lyfja eða fíkniefna.
→ Óskertur makalífeyrir er ætíð greiddur eftirlifandi maka í minnst 36 mánuði og að hálfu í 24 mánuði til viðbótar. Eftirlifandi maki fær þó ávallt greiddan makalífeyri þar til yngsta barn sem var á framfæri sjóðfélagans nær 23 ára aldri enda sé það á framfæri makans.
→ Fjárhæð makalífeyris nemur 60% af áunnum lífeyrisréttindum. Ef sjóðfélaginn uppfyllti skilyrði um lágmarksfjárhæð og tímabil iðgjalda fyrir andlát er aukið við réttindin eins og hann hefði greitt í sjóðinn til 65 ára aldurs.
→ Réttur til makalífeyris fellur niður, ef makinn gengur í hjónaband á ný eða stofnar til sambúðar sem jafna má til hjúskapar, eða stofnar til staðfestrar samvistar.
Andist sjóðfélagi, sem greitt hefur iðgjöld í a.m.k. 24 mánuði á undanfarandi 36 mánuðum eða í 6 mánuði á undanförnum 12 mánuðum og eiga þá börn hans og kjörbörn, er hann lætur eftir sig, rétt á lífeyri úr sjóðnum til 20 ára aldurs.
Fullur barnalífeyrir er 22.117 kr. (27.648 kr.) með hverju barni fyrir hvern almanaksmánuð. Fjárhæðin breytist mánaðarlega í samræmi við breytingu á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar miðað við 513,0 stig í janúar 2022.
Að hafa greitt iðgjald til sjóðsins í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum. Einnig hafa þeir lánsrétt sem hafa greitt til sjóðsins í samtals 36 mánuði. Þeir hafa lánsrétt vegna fyrstu kaupa sem borga einu sinni til sjóðsins