Með Húsnæðislánareiknivél Aurbjargar getur þú borið saman húsnæðislán frá öllum lánastofnunum á einum stað.
Þú velur forsendur sem henta þínum aðstæðum og færð skýran samanburð á vöxtum, mánaðarlegri greiðslubyrði og heildarkostnaði lánanna. Þú getur skráð sérstaka eign og fundið lán fyrir hana, tengt greiðslumat við útreikningana og séð hvort lánið sé innan greiðslugetu.
Hvernig virkar þetta?
Skráðu upplýsingar um fasteignaverð, útborgun og lánsupphæð og fasteign ef við á.
Veldu þær forsendur sem þú vilt, svo sem lánstíma, lánveitendur, lánstegund, greiðslutegund og vexti.
Berðu saman mismunandi niðurstöður frá bönkum og lífeyrissjóðum.
Margar lánastofnanir eru með sérstakar reglur sem gilda sérstaklega fyrir fyrstu kaupendur.
Merktu sérstaklega við að þú sért fyrsti kaupandi og við sjáum um að finna hvaða lánamöguleikar eru í boði.
Tengdu greiðslumat við húsnæðislánareiknivélina
Þú getur tengt létt greiðslumat Aurbjargar við reiknivélina og séð nákvæmlega hvaða lán eru innan þinnar greiðslugetu.
Á þann hátt ert þú ekki einungis að bera saman kjör lánanna heldur sérðu einnig hvaða kostir koma raunverulega til greina fyrir þig.
Blönduð lán
Í Húsnæðislánareiknivélinni getur þú skoðað blönduð lán og prófað mismunandi hlutföll verðtryggðra og óverðtryggðra lána. Þannig sérðu hvernig mismunandi lánasamsetningar hafa áhrif á greiðslubyrði og heildarkostnað lánsins og henta mögulega betur þinni greiðslugetu.
Af hverju Húsnæðislánareiknivél Aurbjargar?
Berðu saman öll íslensk húsnæðislán á einum stað til að finna betra lán fyrir þig.
Þú getur borið saman verðtryggð og óverðtryggð lán, mánaðargreiðslur og heildargreiðslur lána á þægilegan og einfaldan hátt.
Þú getur flokkað niðurstöður út frá ýmsum forsendum, eins og t.d. lánveitanda og vaxtategund.
Niðurstöðurnar úr Húsnæðislánareiknivélinni eru skýrar, auðlesanlegar og þægilegar í notkun.