Ný og Betri Innborgunarreiknivél!
Ný og Betri Innborgunarreiknivél!

Ný og Betri Innborgunarreiknivél!

Aukagreiðslur inn á lán, hvort sem þær eru litlar eða stórar, mánaðarlegar eða stakar, geta haft mikil áhrif á kostnað lána lengri tíma litið. 

Aukagreiðslur geta meðal annars:

- Lækkað höfuðstól lána
- Stytt lánstíma
- Sparað umtalsverðar upphæðir þegar kemur að vöxtum

Og þá vakna oft spurningar eins og:

- Hversu mikið er ég raunverulega að spara með því að greiða aukalega inn á lánið mitt?
- Hvort á ég frekar að greiða aukalega inn á verðtryggða eða óverðtryggða lánið mitt?
- Græði ég meira á því að setja peninginn inn á sparnaðarreikning?

Þar kemur ný up uppfærð Innborgunarreiknivél Aurbjargar til sögunnar

Með Innborgunarreiknivél Aurbjargar getur þú valið skráð lán og séð bein áhrif aukagreiðslna inn á lánið ásamt því að sjá allskonar fróðleik og samanburð í leiðinni.

Í reiknivélinni getur þú valið mismunandi tegundir aukagreiðslna:

- Staka innborgun
- Mánaðarlega aukagreiðslu
- Föst heildargreiðsla

Föst heildargreiðsla getur til dæmis átt við og hentað þeim sem vilja alltaf greiða sömu upphæð í lánakostnað á mánuði. Ef mánaðarleg greiðsla lánsins er 280 þúsund krónur en þú vilt og getur alltaf greitt 350 þúsund krónur, fer mismunurinn í aukagreiðslu inn á lánið.

Eftir að aukagreiðslan hefur verið skráð færð þú niðurstöðu sem sýnir meðal annars:

- Hver heildarsparnaðurinn er/vaxtasparnaður
- Hversu mikið lánstíminn styttist
- Hverjar eru heildaraukagreiðslurnar yfir tímabilið?

Þó upphæðin virðist lítil getur áhrifin orðið mikil yfir langan tíma.

Ástæðan er einföld. Þegar höfuðstóllinn lækkar hraðar reiknast vextir af lægri upphæð. Þá minnkar vaxtakostnaðurinn smám saman og stærri hluti greiðslunnar fer í að greiða niður lánið sjálft.

Dæmi um áhrif aukagreiðslna

Stök greiðsla inn á lán

35 m.kr. lán með óverðtryggðum 8,5% vöxtum til 30 ára - jafnar greiðslur

- 600.000 kr. stök greiðsla 
- Vaxtasparnaður/heildarsparnaður: 756.000
- Stytting lánstíma: Enginn

35 m.kr. lán með 4% verðtryggðum vöxtum, 5,2% verðbólga -  til 25 ára - jafnar greiðslur

- 600.000 kr. stök greiðsla
- Vaxtasparnaður/heildarsparnaður: 1.087.651 kr.
- Stytting lánstíma: Enginn

Mánaðarleg aukagreiðsla

35 m.kr. lán með óverðtryggðum 8,5% vöxtum til 30 ára - jafnar greiðslur

- 55.000 kr. mánaðarleg aukagreiðsla
- Vaxtasparnaður/heildarsparnaður: 12.287.155 kr. 
- Stytting lánstíma: 5 ár og 1 mánuður

35 m.kr. lán með 4% verðtryggðum vöxtum, 5,2% verðbólga -  til 25 ára - jafnar greiðslur

- 55.000 kr. mánaðarleg aukagreiðsla
- Vaxtasparnaður/heildarsparnaður: 12.816.971 kr.  
- Stytting lánstíma: 1 mánuður

Festa heildargreiðslu

35 m.kr. lán með óverðtryggðum 8,5% vöxtum til 30 ára - jafnar greiðslur

Fyrsta greiðsla lánsins: 270 þúsund

- Fest heildargreiðsla: 300.000 kr. - 30 þúsund krónum hærri en fyrsta greiðslan
- Vaxtasparnaður/heildarsparnaður: 10.691.581kr.
- Stytting lánstíma: 11 ár og 2 mánuðir

35 m.kr. lán með 4% verðtryggðum vöxtum, 5,2% verðbólga -  til 25 ára - jafnar greiðslur

Fyrsta greiðsla lánsins: 185 þúsund kr.

- Fest heildargreiðsla: 215.000 kr. - 30 þúsund krónum hærri en fyrsta greiðslan
- Vaxtasparnaður/heildarsparnaður: 12.957.119 kr.
- Stytting lánstíma: 1 ár og 1 mánuður

Greiða inná lán eða spara?

Með uppfærðu Innborgunarreiknivélinni okkar getur þú einnig séð skýrt hvort það borgi sig frekar að greiða inn á lán eða leggja fyrir í sparnað. Þetta er spurning sem margir velta fyrir sér og nú getur þú borið valkostina saman á einfaldan hátt.

Þegar þú hefur skráð inn staka greiðslu inná lán, mánaðarlega aukagreiðslu eða fest heildargreiðslu færðu í kjölfarið niðurstöðu sem sýnir hversu mikilli ávöxtun aukagreiðslan jafngildir.

Með öðrum orðum: reiknivélin sýnir hvaða ávöxtun þú þyrftir að fá af sparnaði eða fjárfestingu til að það borgaði sig jafn mikið og að greiða aukalega inn á lánið.

Þannig getur þú auðveldlega borið saman ávöxtun á sparnaðarreikningi eða fjárfestingu og "ávöxtunina" sem fæst með því að greiða inná lánið. Þá sérðu svart á hvítu hvort það borgi sig frekar að spara upphæðina eða greiða hana inná lán. 

Aurbjörg finnur tækifæri í fjármálum heimilisins
Láttu Aurbjörgu standa vaktina og hjálpa þér að taka betri ákvarðanir í fjármálum.
Aurbjörg
Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða þig við að taka upplýstari og betri ákvarðanir í fjármálum.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2017-2026 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík
TikTokFacebookInstagram