

Flestir velta fyrir sér hvenær þeir geti hætt að vinna. Samt er þeirri spurningu sjaldan svarað með mikilli vissu. Lífeyrismál eru flókin og byggja á mörgum forsendum þar sem reglurnar eru ekki alltaf auðskiljanlegar. Því hefur fólk oft þurft að reiða sig á ágiskanir eða einfaldar reiknivélar sem ná ekki utan um heildarmyndina.
Lífeyrisbestun frá Aurbjörgu er búin til þess að breyta þessu. Markmiðið er ekki að sýna bara einhverja mögulega niðurstöðu - heldur að finna bestu niðurstöðuna fyrir hvern og einn. Í stað þess að prófa sig áfram með ótal sviðsmyndum fær notandinn niðurstöðu sem byggir á því hvernig sparnaður, lífeyrir og tímasetningar vinna best saman yfir ævina.
Bestun: það að finna bestu lausn á einhverju máli, dæmi, viðfangsefni.
Hér er dæmigerð niðurstaða úr bestuninni, allt útskýrt með litum og fíneríi.
Lífeyrisbestun byggir á þeim grunni sem Aurbjörg hefur þegar lagt með fyrri lífeyrislausnum. Þar má nefna samanburð á samtryggingu og séreign, yfirsýn yfir lífeyrisréttindi og lífeyrisreiknivél sem tekur mið af reglum allra lífeyrissjóða. Lífeyrisbestun nýtir þessa innviði en gengur skrefinu lengra. Hún tekur mið af réttindatöflum lífeyrissjóðanna, reglum Tryggingastofnunar ríkisins og gildandi skattkerfi og setur alla þessa þætti í samhengi. Útkoman er ekki bara tölur á blaði heldur myndræn framsetning og bestun sem þýðir að allar helstu breytur eru stilltar til að finna þá niðurstöðu sem hentar best hverjum einstaklingi.
Til að byrja með setur notandinn inn helstu forsendur um sína stöðu. Þar á meðal eru:
• Tekjur
• Sparnaður og séreign
• Lífeyrisréttindi
• Aldur og áætluð þróun
Út frá þessum upplýsingum velur notandinn svo hvaða markmið skiptir mestu máli. Þar liggja þrjár ólíkar leiðir eða markmið sem endurspegla mismunandi nálgun á lífeyri. Förum yfir hverja nálgun fyrir sig.
Einfaldar sviðsmyndir sem auðvelda lífeyrismálin þín
Með þessari aðferð er fundinn samhljómur með markmiðum FIRE-hreyfingar (Financial Independence, Retire Early) á Íslandi. Markmið þeirrar hreyfingar er að forgangsraða sparnaði og skipulagningu til að stuðla að fjárhagslegu sjálfstæði fyrr á ævinni. Við slíka markmiðasetningu er gott að hafa Lífeyrisbestun Aurbjargar.
Í þessari bestun skoðar tólið sérstaklega:
• Hversu snemma hægt er að hætta að vinna miðað við núverandi stöðu
• Hvernig dreifa á sparnaði til að brúa bilið fram að lífeyristöku
• Hvenær best er að taka út séreign og samtryggingu.
Niðurstaðan er birt með tímalínu sem sýnir ekki bara hvenær þú getur hætt, heldur hvernig þú kemst þangað án þess að taka óþarfa áhættu.
Hér er markmiðið skýrt frá byrjun. Þú ákveður starfslokaaldur og tólið vinnur til baka út frá honum. Þessi nálgun hentar vel þeim sem vilja fyrirsjáanleika og vita hvort þeir séu á réttri leið.
Í þessari leið felst meðal annars:
• Útreikningur á því hversu mikið þarf að spara til að ná markmiðinu
• Mat á því hvort núverandi sparnaður dugi
• Tillögur að breytingum ef upp á vantar
Í stað þess að fá aðeins niðurstöðu færðu skýra mynd af því hvað þarf að gerast til að markmiðið verði raunhæft.
Þessi leið er sérstaklega gagnleg fyrir þá sem eru nálægt starfslokum eða vilja tryggja að þeir fái sem mest út úr þeim réttindum sem þeir hafa safnað.
Hér beinist athyglin að því að:
• Finna bestu tímasetningu lífeyristöku
• Samræma útgreiðslur úr séreign og samtryggingu
• Taka tillit til áhrifa Tryggingastofnunar, ef við á, og skatta
Litlar breytingar á tímasetningu geta haft veruleg áhrif á tekjur á efri ára og því skiptir þessi bestun oft miklu máli.
Það sem sameinar þessar leiðir er að notandinn þarf ekki að vita fyrirfram hver besta lausnin er. Hann setur inn sínar forsendur og velur sér markmið, lífeyrisbestun Aurbjargar sér um að greina samspil allra þátta og skila niðurstöðu sem er bæði skýr og framkvæmanleg.
Reynslan okkar sýnir að margir koma inn með eina hugmynd en fara út með aðra. Þau okkar sem telja sig vilja hætta snemma sjá kannski að með litlum breytingum er hægt að lágmarka áhættu á tímabilinu verulega. Annar sem hefur stefnt á ákveðinn aldur uppgötvar að hann getur hætt fyrr en hann taldi. Þriðji sér hversu miklu skiptir að tímasetja lífeyristöku rétt.
Lífeyrisbestun er því ekki bara tæki til að svara einni spurningu, heldur leið til að skilja valkosti lífeyristöku og starfslokaaldurs betur. Hún setur flókið kerfi í samhengi á aðgengilegan og gagnlegan hátt og auðveldar notendum að taka réttar ákvarðanir.
Að lokum stendur þó sama spurningin eftir, en nú með skýrara svari.
Hvenær getur þú hætt að vinna?
Komdu í Aurbjörg PLÚS og við finnum svarið saman.