

Innborgunarbestun Aurbjargar segir þér nákvæmlega hvert aukagreiðslurnar eiga að fara! Allt reiknað út frá bestunarfræði til að finna út hver besta mögulega leiðin er til niðurgreiðslu lánanna er og útreikningarnir eru alveg óháðir þumalputtareglum eins og snjóflóða- og snjóboltaaðferðinni.
Mjög margir eru með fleiri en eitt lán.
Einstaklingar eru til dæmis með fleiri en eitt húsnæðislán - Eitt verðtryggt og annað óverðtryggt - Grunnlán og svo viðbótarlán - Húsnæðislán og bílalán - Húsnæðislán og neyslulán. Það geta verið allskonar birtingarmyndir af þessu!
Þegar fólk hefur auka pening á milli handanna þegar kemur að mánaðarmótum vakna oft upp spurningar eins og - hvaða lán á ég að byrja að greiða niður?
Innborgunarbestun Aurbjargar kemur þá til bjargar!
- Þú byrjar á því að velja þau lán sem þú vilt fara að greiða niður.
- Þú velur svo um hvort sé að ræða staka greiðslu á lánið, fasta aukagreiðslu eða fasta heildargreiðslu.
- Þú getur svo valið um hvort að þú verðtryggir upphæðina eða ekki. Ef þú verðtryggir upphæðina reiknum við út fyrir þig hvernig aukagreiðslan hækkar með verðbólgu
- Þú velur svo hvort þú viljir hámarka aukagreiðslurnar með tilliti til heildarsparnaðar eða núvirts sparnaðar
Út færðu greiðsluáætlun sem segir þér nákvæmlega hvaða lán þú átt að byrja á að greiða niður og hver besta leiðin til niðurgreiðslu er.
Þú færð einnig upplýsingar sem segja þér hver heildarsparnaður aukagreiðslanna er, hverjar heildar aukagreiðslurnar eru, áhrif aukagreiðslanna á lánstíma og svo færðu að vita árlega ávöxtun.
Árleg ávöxtun segir þér hversu mikilli ávöxtun aukagreiðslurnar jafngilda, og gefur þá í ljós fyrir þig hvort betra sé að fyrir þig að spara eða greiða niður lán.