Aurbjörg

Hvernig virkar hitaveitureikningur heimilanna?

Hvernig virkar hitaveitureikningur heimilanna?

Mánaðarlega þarf að greiða fyrir notkun á heitu vatni. Svokölluð veitufyrirtækin innheimta þennan kostnað og þau eru þau sömu og sjá um dreifiveitu á rafmagn: HS Veitur, Veitur, Orkubú Vestfjarða, Norðurorka og Rarik. 

Ólíkt kaupum á rafmagni þá getur þú ekki valið hjá hvaða veitufyrirtæki þú ert. 

Hvert fyrirtæki er með sitt skilgreinda þjónustusvæði og heimilisfang þitt ákvarðar við hvaða veitufyrirtæki þú verslar.

Reikningur fyrir hitaveitu skiptist í tvennt en berst til þín bara sem einn heildarreikningur. 

1. Fast gjald - um 15% af heildargreiðslu

Þetta fasta gjald fer eftir stærð heitavatnsmælis í húsnæðinu og reiknast yfirleitt sem ákveðið gjald á dag eða á ári. 

Þessi hluti heitavatnsreikningsins er að meðaltali um 15% af heildarupphæð reikningsins á mánuði og stendur undir kostnaði við dreifikerfið, tengingar og mælingar alveg óháð því hversu mikið magn af heitu vatni er notað. 

2. Breytilegt gjald - um 85% heildargreiðslu

Breytilegt gjald fer eftir notkun á heitu vatni, bæði til húshitunar til að halda húsunum okkar heitum og annarrar notkunar eins og fyrir sturtu, bað, uppvask og fleira sem tengist almennri notkun á heitu vatni. Greitt er fyrir notkun á hverjum 1000 lítrum af vatni. 

Þessi hluti heitavatnsreikningsins er að meðaltali um 85% af heildarupphæð heitavatnsreikningsins heimilisins. 

Það er merkilegt að af breytilega gjaldinu fer um 90% í upphitun húsnæðis. Hin 10% fara í almenna notkun eins og sturtu og bað, uppvask og aðra almenna notkun á heitu vatni. 

Verðhækkun í janúar 2026

Í upphafi árs 2026 varð nokkur umræða um um verðskrárhækkun Veitna sem þjónusta höfuðborgarsvæðið. Héltu sumir því fram að Veitur hefðu hækkar verðskrána um 50%. Í ljós kom að um var að ræða 50% hækkun á fasta gjaldi heitavatns reiknings höfuðborgarbúa. 

Einnig má nefna hið margfræga bank í ofnum sem reynist vera afleiðing þess þegar loft safnast upp inni í ofninum sem þarf síðan að tappa af ofninum. En það er spurning um hver eigi að gera það …

Aurbjörg finnur tækifæri í fjármálum heimilisins
Láttu Aurbjörgu standa vaktina og hjálpa þér að taka betri ákvarðanir í fjármálum.
Gerast áskrifandi
Aurbjörg
Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða þig við að taka upplýstari og betri ákvarðanir í fjármálum.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2017-2026 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík