

Oftast, um hver mánaðarmót færðu greidd laun fyrir vinnuna þína. Þú greiðir reikningana þína og yfir mánuðinn er svo kortið notað. Kaffi, matarinnkaup, bensín, áskriftir, kannski ný peysa og svo jafnvel farið út að borða. Svo er mánuðurinn búinn og þú ert ekki alveg viss hvert allir peningarnir fóru og þarft jafnvel að taka af sparnaði eða fjármagna eyðsluna með einhversskonar láni til að eiga fyrir líðandi mánuði.
Til að leysa þetta vandamál og auka yfirlit, þróuðum við hjá Aurbjörgu Dagleg fjármál.
Dagleg fjármál er skýr leið til að skrá tekjur og útgjöld, flokka þau og fá fallegt, einfalt og myndrænt yfirlit yfir stöðuna þína, allt á einum stað. Engin excel skjöl, engar flóknar töflur, bara skýr mynd af raunveruleikanum.
Einfalt og skýrt graf sem gefur þér yfirlit yfir öll þín Daglegu fjármál
Þú byrjar á að skrá inn heildartekjurnar þínar og fleiri upplýsingar sem tengjast þínum laununum. Þú getur jafnvel bætt við tekjum maka til þess að fá heildrænt yfirlit fyrir heimilið í heild sinni. Út frá þessum upplýsingum færðu yfirlit yfir ráðstöfunartekjur heimilisins, upphæðin sem situr eftir og þú hefur í raun til að lifa af.
Samhliða því færðu skýra mynd af því hversu mikið fer í skatta og lífeyrissjóð. Þannig sérðu ekki bara hvað þú þénar og færð í ráðstöfunartekjur, sérðu heildarmyndina.
Sjáðu hvernig launin fara í opinber gjöld og lífeyrissjóð.
Þú býrð svo til flokka sem henta þínum útgjöldum og lífstíl. Þeir geta verið matur, heimilið, lán, skemmtun og afþreying, bíll eða einfaldlega “fyrir mig” og fleira. Þú ræður ferðinni hér og getur ráðið hvort þú setjir upp einn flokk fyrir mat, eða flokkar niður á verslanir.
Þú skráir svo útgjöldin niður á þann flokk sem á við. Aftur, þá ræðir þú ferðinni. Þú getur flokkað hverja færslu mánaðarins í viðeigandi flokk eða tekið samtölu og skráð. Hægt er að skrá útgjöldin sem föst útgjöld, árleg, stök eða tímabundin.
Að þessu loknu færðu færðu gott yfirlit yfir hvern flokk og útgjaldarlið fyrir sig og sérð nákvæmlega hvað liggur á bakvið, hvort sem það er matarinnkaup, húsnæðislánin, fasteignagjöld eða líkamsrækt.
Yfirlit yfir útgjöldin á einum stað
Settu þér markmið í hverjum flokki fyrir sig og sjáðu hvort þú standist markmiðin og áætlun eða farir framyfir þín markmið.
Þú getur gert svo það að venju að skipulegga næsta mánuð eða gera upp þann síðasta.
Hér má sjá hvernig þú getur séð hvort þú farir umfram markmið eða sért innan viðmiða!
Hvert fóru allir peningarnir?
Dagleg fjármál frá Aurbjörgu hjálpar þér að fá skýrt og einfalt yfirlit yfir tekjur og útgjöld – allt á einum stað.
Sjáðu hvað kemur inn, hvað fer út og hvert peningarnir raunverulega fara. Flokkaðu útgjöldin eftir þínum lífsstíl, fylgstu með sköttum og lífeyri og settu þér raunhæf markmið fyrir hvern mánuð.
Engin Excel skjöl. Engar flóknar töflur. Bara fallegt, myndrænt yfirlit sem gefur þér stjórn og betri yfirsýn.
Meira yfirlit. Minni óvissa. Betri fjármál.