

Margir vilja spara meira en það sem þeir nú þegar gera en vita ekki alveg hvar þeir eiga að byrja. Sumir telja að þeir þurfi háar upphæðir til að geta lagt fyrir en sannleikurinn er sá að reglulegur sparnaður getur skipt meira máli en upphæðin sjálf.
Hvort sem markmiðið er að safna fyrir ferðalagi, útborgun á fasteign, nýjum bíl eða einfaldlega eiga fjárhagslegt öryggisnet, þá er aldrei of snemmt eða seint að hefja sparnað.
Sparnaður snýst ekki aðeins um að eiga peninga inn á bankareikningi. Hann getur veitt meira fjárhagslegt öryggi og aukið sveigjanleika þegar óvænt útgjöld koma upp.
Ef þvottavélin bilar, bíllinn þarfnast viðgerðar eða tekjur lækka tímabundið getur sparnaður dregið úr þeirri þörf að taka lán eða nota yfirdrátt.
Jafnframt getur reglulegur sparnaður hjálpað þér að ná stærri markmiðum án þess að þurfa að leggja út fyrir háum upphæðum í einu.
Margir fresta sparnaði vegna þess að þeir telja sig ekki geta lagt mikið fyrir í hverjum mánuði. En sparnaður þarf ekki að byrja á tugum þúsunda.
Ef þú leggur til dæmis 5 þúsund krónur fyrir í hverjum mánuði safnast upp 60 þúsund krónur á einu ári. Ef upphæðin er 10 þúsund krónur eru það 120 þúsund krónur á ári, án þess að taka tillit til ávöxtunar.
Það mikilvægasta er að mynda góða venju. Þegar sparnaður verður hluti af mánaðarlegum útgjöldum verður auðveldara að hækka upphæðina síðar ef fjárhagurinn leyfir.
Ekki allur sparnaður þjónar sama tilgangi. Gott er að hugsa um sparnað út frá markmiðinu.
Neyðarsjóður
Neyðarsjóður er ætlaður fyrir óvænt útgjöld, svo sem viðgerðir, heilbrigðiskostnað eða tímabundið tekjutap. Margir miða við að eiga sem samsvarar nokkurra mánaða útgjöldum á aðgengilegum sparnaðarreikningi.
Sparnaður fyrir ákveðið markmið
Ef þú ert að safna fyrir ferðlagi, nýjum bíl eða útborgun á íbúð getur verið gott að stofna sérstakan sparnaðarreikning fyrir það markmið. Það gerir auðveldara að fylgjast með árangrinum og minnkar líkurnar á að sparnaðurinn fari í önnur útgjöld.
Langtímasparnaður
Ef markmiðið er að spara til lengri tíma, til dæmis 10-20 ár eða lengra, getur verið áhugavert að skoða sparnaðarleiðir sem bjóða upp á meiri á ávöxtun en hefðbundinn sparnaðarreikningur. Þetta getur til dæmis verið áskrift að sjóðum eða hlutabréfum en mikilvægt er að kynna sér áhættuna sem getur fylgt slíkum sparnaði.
Það þarf ekki að flækja fyrir sér hlutina þegar maður byrjar sparnað. Oft duga einföld skref.
- Settu upp sjálfvirkan mánaðarlegan sparnað
- Byrjaður á upphæð sem þú ræður auðveldlega við
- Hækkaðu sparnaðinn smám saman þegar svigrúm skapast
- Hafðu skýrt markmið með sparnaðnum
Góð regla er að færa sparnaðinn af launareikningnum um leið og þau berast í hverjum mánuði. Það minnkar líkurnar á því að peningarnir fari í önnur útgjöld.
Það er auðvelt að ætla sér að byrja seinna. En fullkomni tíminn kemur sjaldnast.
Mjög algeng mistök eru því:
- Að bíða eftir að tekjurnar hækki áður en sparnaður hefst
- Að halda að aðeins háar upphæðir skipta máli
- Að eiga engan neyðarsjóð
- Að hafa ekkert skýrt markmið með sparnaðnum
- Mikilvægara er að byrja með litlar upphæðir en að bíða eftir rétta tímanum.
Viðskiptabankarnir þrír bjóða allir upp á vildarþjónustur fyrir viðskiptavini sína. Þó þær snúist um miklu meira en bara sparnað er eitt af fríðindunum að þú getur fengið hærri vexti á ákveðnum sparnaðarreikningum.
Arion Banki býður upp á Arion fríðindi. Þar færist þú á milli þjónustustiga eftir því hversu mikil viðskipti þú átt við bankann. Því hærra sem þjónustustigið er, því betri kjör geturðu fengið, meðal annars hærri vexti á ákveðnum sparnaðarreikningum.
Íslandsbanki er með Vildarþjónustu, þar sem þú safnar stigum með því að nýta mismunandi þjónustu bankans. Stigin færa þig á milli fimm þjónustustiga sem kennd eru við íslensk fjöll og með hærri toppum fylgja meðal annars betri vextir á sparnaði.
Landsbankinn býður upp á Vild, þar sem þú safnar einnig stigum út frá viðskiptum þínum. Stigin færa þig á milli þriggja vildarstiga og á hærri stigum geturðu meðal annars fengið betri vexti á Markmiðsreikningi bankans.
Ef þú ert nú þegar í reglulegum viðskiptum við einn banka getur það verið þess virði að skoða hvaða vildarkerfi hann býður upp á. Þótt það eitt og sér eigi ekki að ráða vali á banka getur það verið skemmtileg viðbót sem hjálpar sparnaðinum að skila aðeins meira.