50/30/20 reglan: Hvernig getur Aurbjörg hjálpað þér að halda betur utan um fjármálin?
  • Aurbjörg
  • Bloggið
  • 50/30/20 reglan: Hvernig getur Aurbjörg hjálpað þér að halda betur utan um fjármálin?
50/30/20 reglan: Hvernig getur Aurbjörg hjálpað þér að halda betur utan um fjármálin?

50/30/20 reglan: Hvernig getur Aurbjörg hjálpað þér að halda betur utan um fjármálin?

50/30/20 reglan er góð regla til að ná betri stjórn á fjármálunum. 

Hefur þú einhvern tímann spurt þig:
" Hvað á ég eiginlega að eyða miklu - og í hvað? "

Það er auðvelt að missa yfirsýn þegar peningarnir fara í húsnæði, mat, áskriftir, ferðalög og allt hitt sem fylgir daglegu lífi. 

Ein vinsæl leið til að halda utan um fjármálin er 50/30/20 reglan. Hún hjálpar þér að skipta ráðstöfunartekjunum þínum í þrjá einfalda flokka. 

Hvað er 50/30/20 reglan?

Reglan gengur út á að skipta ráðstöfunartekjum, sem eru útborgaðar tekjur eða tekjur eftir skatt, í þrjá flokka:

- 50% í nauðsynjar
- 30% í langanir
- 20% í sparnað eða niðurgreiðslu skulda

Markmiðið er að skapa heilbrigt jafnvægi milli lífsins í dag og fjármála í framtíðinni.

50% - Nauðsynjar 🏡🍔🚗

Nauðsynjar eru útgjöld sem þú verður að greiða til að halda daglegu lífu gangandi.

Dæmi:

- Húsnæði (leiga eða afborgun af láni)
- Gjöld sem tengjast eigin fasteign, fasteignagjöld ofl.
- Rafmagn og hiti
- Samgöngur
- Nauðsynlegar tryggingar
- Grunnáskriftir eins og sími og internet
- Matarinnkaup í stórverslunum

Ef þessi útgjöld fara yfir 50% af tekjum, getur það verið merki um að fjárhagurinn sé orðinn þröngur. 

30% - Langanir ✨🥂⛳️🏝️

Langanir eru hlutir sem gera lífið skemmtilegra, en eru ekki algjörlega nauðsynlegir. 

Dæmi:

- Veitingastaðir og kaffihús
- Ferðalög
- Fatainnkaup umfram það nauðsynlegasta
- Áskriftir 
- Skemmtanir og áhugamál

Þessi flokkur snýst um lífsgæði í dag, svo það er mikilvægt að hafa pláss fyrir hann líka

20% - Sparnaður og skuldir 📈💰

Síðasti hluti reglunnar snýst um framtíðina þína.

Þessi 20% fara til dæmis í:

- Sparnað & neyðarsjóð
- Fjárfestingar
- Niðurgreiðslu skulda

Einfalt dæmi

Segjum að ráðstöfunartekjur séu 800.000 kr., en það eru tekjurnar sem útborgaðar eru, semsagt eftir skatt. 

Þá myndi skiptingin líta svona út:

- 400.000kr. í nauðsynjar (50%)
- 240.000kr. í langanir (30%)
- 160.000 kr. í sparnað eða skuldir (20%)

Hvernig hjálpar Aurbjörg?   

Með Daglegum fjármálum Aurbjargar getur þú flokkað útgjöldin þín og fengið betri yfirsýn yfir hvert peningarnir fara.

Ef þú vilt styðjast við 50/30/20 regluna getur þú nefnt flokkana eftir henni: nauðsynjar, langarnir og sparnaður og skuldir, og skráð síðan útgjöld í viðeigandi flokk eftir því hvar þau eiga heima.

Þú getur einnig sett þér markmið fyrir hvern flokk út frá reglunni. Þá sérðu auðveldlega hvort útgjöldin þín eru innan viðmiða eða hvort þau fara fram úr markmiðunum.

Ef þú ert undir markmiði í einhverjum flokki getur þú til dæmis aukið sparnaðinn, eða nýtt svigrúmið á annan hátt. Ef útgjöld fara yfir markmið geturðu aftur á móti séð það strax og brugðist við.

Þannig hjálpar Aurbjörg þér að halda yfirsýn, setja skýr markmið og fylgjast með hvernig fjármálin þróast yfir mánuðinn.

50/30/20 reglan notuð með aðstoð Aurbjargar ✨

Virkar reglan fyrir alla?

Ekki endilega. Á Íslandi getur húsnæðiskostnaður verið hár og matarinnkaup fyrir stórar fjölskyldur kostnaðarsöm. Því er eðlilegt að útgjöld til nauðsynja fari stundum yfir 50%.

Þá væri hægt að aðlaga regluna aðeins, t.d.

- 60/20/20
- 60/30/10

Það mikilvægasta er að vera meðvitaður um hvert peningarnir eru að fara. 

Aurbjörg finnur tækifæri í fjármálum heimilisins
Láttu Aurbjörgu standa vaktina og hjálpa þér að taka betri ákvarðanir í fjármálum.
Aurbjörg
Markmið Aurbjargar er að auka fjármálalæsi, auka gagnsæi og aðstoða þig við að taka upplýstari og betri ákvarðanir í fjármálum.
RannisTaekniþrounarsjod
© 2017-2026 • Aurbjörg ehf. • 430518-1430 • Lágmúla 9 • 108 Reykjavík
TikTokFacebookInstagram