Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Vættagil 21 - vel skipulögð 4ra herbergja parhúsaíbúð á einni hæð með sambyggðum bílskúr í Giljahverfi - stærð 136,8 m² þar af telur bílskúr 24,7 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, geymslu, þvottahús og bílskúr.
Forstofa er með flísum á gólfi og spónlögðum eikar skáp og skúffueiningu.
Eldhús, dúkur á gólfi og spónlögð eikarinnrétting með ljósri bekkplötu. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. Borðkrókur með glugga til norðurs.
Stofa og hol eru með ljósu eikar parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergin eru þrjú, tvö með dúk á gólfi og hjónaherbergi með parketi á gólfi, spónlögðum eikar skáp og hurð til austurs út á timbur verönd. Stærð herbergja er skv. teikningum 8,7 , 8,9 og 13,9 m².
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, græn sprautulökkuð innrétting, wc, handklæðaofn, baðkar og sturta. Hiti er í gólfi.
Geymsla er með harðparketi á gólfi og hillum. Hleri er í loftinu upp á loftið.
Þvottahús, flísar á gólfi og spónlögð eikar innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í bílskúr.
Bílskúr er án gólfefna. Þar er rafdrifinn opnari á innkeyrsluhurð, vinnuborð og geymsluloft yfir hluta. Fyrir framan er steypt bílaplan.
Annað- Verönd er fyrir framan húsið með timbur skjólveggjum. Litil timbur verönd er á baklóðinni og er gengið út á hana úr hjónaherbergi.
- Bílaplan er steypt.
- Eignin er laus til afhendingar í byrjun október 2026.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.