Heimili fasteignasala kynnir virkilega smart 4ra herbergja 111,8 fermetra íbúð á 3. og efstu hæð. Sérinngangur í nýlegu sex íbúða húsi sem stendur á besta stað, neðst í Úlfarsárdal. Frelsandi útsýni og nálægð við ósnortna náttúru, hjóla- og göngustíga. Eignin ber merki um natni og góða umgengni. ... Sýna meira
Heimili fasteignasala kynnir virkilega smart 4ra herbergja 111,8 fermetra íbúð á 3. og efstu hæð. Sérinngangur í nýlegu sex íbúða húsi sem stendur á besta stað, neðst í Úlfarsárdal. Frelsandi útsýni og nálægð við ósnortna náttúru, hjóla- og göngustíga. Eignin ber merki um natni og góða umgengni. Hleðslustöð fyrir rafbíl tilheyrir íbúðinni. Eignin telur 111,8 fm samkvæmt þjóðskrá og skiptist í forstofu, alrými með eldhúsi og stofu og útgengi á suðursvalir, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með þvottahúsi innaf. Rúmgóð geymsla á jarðhæð.Húsið er byggt árið 2020, úr krosslímdum timbureiningum (CLT) frá Binderholz í Austurríki. Má kalla efnið Vistvænt þar sem CLT (frá Binderholz) kemur allt úr sjálfbærum skógum. Að utan eru húsin einangruð með steinull og léttri loftaðri utanhússklæðningu úr málmi. Að innan eru veggir klæddir með gipsi. Frá götu er gengið upp eina hæð að sérinngangi íbúðarinnar.Forstofa með flísum á gólfi. Góðir fataskápar.Eldhús og stofa eru í björtu alrými með glæsilegu útsýni til suðurs. Dökkar innréttingar í eldhúsi með góðum tækjum, þar með talinn ísskápur og uppþvottavél.Gengið úr eldhúsi/stofu út á góðar suðursvalir.Baðherbergi er rúmgott, flísalagt og með gler sturtuskilrúmi, innréttingu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Innaf baðherbergi er þvottahús með góðri innréttingu. Lokast með rennihurð.Svefnherbergin eru þrjú talsins og eru öll rúmgóð og björt með góðu skápaplássi.Parket á öllum gólfum, nema forstofu, baðherbergi og þvottahúsi sem eru flísalögð.Rúmgóð geymsla á jarðhæð sem er skráð 8,3 fm en er nokkuð stærri. Fasteignamat næsta árs kr. 72,4 millj. Húsið stendur innarlega í botngötu. Sunnan við húsið er gangstígur er tengir svæðið skóla, leikskóla og íþróttamannvirkjum en örstutt er í þessa þjónustu. Vinsamlegast pantið skoðun hjá Ragnari Þorgeirssyni, löggiltum fasteignasala, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar um eignina í síma 774 7373 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.