Þórunnarstræti 112 efri hæð - Stór og björt 4-5 herbergja efri hæð á efri brekkunni ásamt bílskúr - Stærð 186,1 m²
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:Forstofa, eldhús, stofa, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Forstofa er á fyrstu hæð en þar er opið fatahengi og gengið upp stiga á hæðina.
Eldhús er með rúmgóðri innréttingu, góður borðkrókur og parket á gólfi.
Stofa er mjög rúmgóð með stórum gluggum og fallegri kamínu. Parket á gólfi.
Svefnherbergin eru fjögur, tvö þeirra með fataskápum og öll með parketi.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, baðkari með sturtutækjum og wc. Flísar á gólfi og veggjum. Opnanlegur gluggi.
Þvottahús á svefnherbergisgangi með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegum glugga.
Bílskúr, 33,1 m², er með steyptu gólfi, þar er rafmagn og kalt vatn.
Annað:- Nýlega hefur verið skipt um lagnir frá húsi og útí götu
- Gólfhiti er á stærstum hluta íbúðarinnar.
- Múrviðgerðir verða framkvæmdar í sumar og greiðast af seljanda.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.