Nýtt á skrá! Sandavað 1 Reykjavík - Glæsileg 4ra herb. fjölskylduíbúð/endaíbúð með stæði í bílakjallara, þvottaherbergi inn af íbúð og útsýni.Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega 119,0 fermetra 4ra herbergja endaíbúð með rúmgóðum svölum til suðurs (svalalokun að hluta) í góðu fjölbýli með lyftu við Sandavað 1 í Reykjavík. Íbúðin er virkilega vel skipulögð og björt með gluggum til suðausturs og suðvesturs í alrými. Útgengi úr stofu á rúmgóðar svalir til suðurs með fallegu útsýni að Heiðmörk og til fjalla. Vandaðar sérsniðnar gardínur frá Skermir gluggatjöldum í íbúðinni. Stór 11,9 fermetra sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sérmerkt stæði í bílakjallara fylgir íbúð og er rafhleðslukerfi uppsett í bílakjallara. Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Lyfta í sameign. Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Norðlingaholti í Reykjavík. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í göngufæri ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Heiðmörk og Rauðavatn. Nánari lýsing:Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Hol/sjónvarpsstofa: Með harðparketi á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og gluggum til suðausturs og suðvesturs. Virkilega fallegt útsýni frá stofu að Heiðmörk og til fjalla. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Opin við eldhús og útgengt á rúmgóðar svalir til suðurs.
Svalir: Eru rúmgóðar til suðurs (suðausturs og suðvesturs) með svalalokun að hluta. Fallegt útsýni er frá svölum.
Eldhús: Var endurnýjað árið 2019 á virkilega fallegan máta. Harðparket á gólfi og hvít eldhúsinnrétting með góðu skápa- og vinnuplássi. Stál bakaraofn, spansuðu helluborð og eyjuháfur. Gluggi til suðvesturs og lýsing undir efri skápum.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask og opnanlegur gluggi til norðvesturs.
Þvottaherbergi: Endurnýjað árið 2025. Er staðsett inn af íbúð. Flísar á gólfi og tenglar fyrir þvottavél/þurrkara.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðvesturs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi og glugga til suðvesturs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðvesturs.
Sérmerkt bílastæði: Er staðsett í bílakjallara. Uppsett rafhleðslustöð við stæði.
Geymsla: Er staðsett við bílastæði og er 11,9 fermetrar að stærð.
Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett í sameign hússins.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is