*** Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun ***Alda fasteignasala og Hafþór Örn lgf kynna: Fallega og glæsilega innréttaða 2ja herbergja útsýnisíbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi við Naustabryggju 54 í Reykjavík.Eignin er í vönduðu bárujárnsklæddu fjölbýlishúsi sem staðsett er við smábátahöfnina í Bry... Sýna meira
*** Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun ***Alda fasteignasala og Hafþór Örn lgf kynna: Fallega og glæsilega innréttaða 2ja herbergja útsýnisíbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi við Naustabryggju 54 í Reykjavík.Eignin er í vönduðu bárujárnsklæddu fjölbýlishúsi sem staðsett er við smábátahöfnina í Bryggjuhverfinu með víðfemu útsýni yfir Faxaflóa. Smelltu hér til þess að sjá þáttinn með heimsókn Sindra Sindrasyni í Naustabryggju 54Nánari upplýsingar veitir: Hafþór Örn Guðjónsson, löggiltur fasteignasali. S:699-4040. Samkvæmt FMR er íbúðin 58,1 m2 merkt 01-0302 og geymslan 4,9 m2 merkt 01-0013. Samtals 63 m2.Íbúðin er smekklega innréttuð af íslenskum arkítekt og nýting rýma er sérlega góð. Harðparket frá Birgisson er öllum rýmum fyrir utan baðherbergi og fataherbergi, en þar eru vandaðar flísar. Innihurðir eru úr gleri, bæði glæru og sandblásnu. Falleg lýsing er í íbúðinni. Blöndunartæki í íbúðinni eru frá franska hönnuðinum Philippe Starck. Eign skiptist í: Anddyri, svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, stofu/ borðstofu, eldhús, svalir, geymslu. Þvottahús og barnav./ hjólageymsla er í sameignAnddyri: Er með djúpum fataskáp með gler rennihurð, stórum spegli á vegg, Harðparket á gólfi. .Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf, með glæsilegu frístandandi baðkari og sturtu yfir, upphengdu salerni, góðri stál innréttingu undir vaski með granít borðplötu og gleri yfir, spegli á vegg og speglaskáp. Loft er niðurtekið með halogen lýsingu.Innangent er úr anddyri og úr svefnherbergi inná baðherbergi. Blöndunartæki og salerni frá franska hönnuðinum Philippe Starck. Eldhús og stofa: Eru í opnu og björtu rými með gólfsíðum gluggum. Eldhús er með vandaðri hvítri sprautulakkaðri innréttingu, granít borðplötu, lýsing er undir innréttingu,tengi fyrir uppþvottavél. Spegill er á milli skápa. Í stofu er einnig innskot sem lokað er af með skilrúmi, með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Harðparket á gólfiSvefnherbergi: Er rúmgott og bjart, inn af svefnherbergi er fataherbergi með stál hillum og fatahengi sem fylgja. Á veggnum er skilrúm á braut með hvítu skilrúmi sem hægt er að færa til á veggnum. Harðparket á gólfi.Svalir: Góðar vestur svalir með glæsilegu útsýni yfir smábátahöfn og út á Faxaflóa.Geymsla: Sérgeymsla í sameign. 4,9 m2,Hjóla og vagnageymsla: Er í sameign,Þvotthús: Sameiginlegt þvottahús er í sameign, hver með sitt tengi fyrir þvottavél og þurrkara.Um er að fallega og glæsilega innréttaða 2ja herbergja íbúð í einstaklega fallegu bárujárnsklæddu fjölbýlishúsi við smábátahöfnina í Bryggjuhverfinu með víðfemu útsýni yfir Faxaflóa. Nánari upplýsingar veitir:Hafþór Örn Guðjónsson, löggiltur fasteignasali. S:699-4040. Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.000 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALDA fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.