Nýtt á skrá! Melhæð 5 Garðabæ - Glæsilegt og sjarmerandi 5 svefnherbergja fjölskylduhús á 1066,0 fermetra lóð auk studioíbúðar í hluta bílskúrs.Eignin er eingöngu sýnd í einkasýningum. Bókið skoðun hjá heimir@fastlind.isLind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilegt 321,4 fermetra einbýlishús með aukaíbúð/studioíbúð í hluta af bílskúr á frábærum stað við Melhæð 5 í Garðabæ. Sjarmerandi stofa (setustofa og borðstofa) sem er um 80 fermetrar að stærð og með tæplega 8 metra lofthæð. Fallegar verandir sunnan- og vestan megin við húsið. Húsið stendur innst í afar snyrtilegri botnlangagötu. Lóðin, sem er 1066,0 fermetrar að stærð er fallega gróin og stendur húsið í miklu skjóli. Hellulögð bílastæði (rúmar fjórar bifreiðar) fyrir framan hús. Snjóbræðsla undir stétt að húsi og fyrir framan bílskúr. Góður geymsluskúr er staðsettur á baklóð hússins.
Nýlega er búið að mála húsið að innan sem utan. Einnig var þak yfirfarið og málaið árið 2026.
Aðalhæð skiptist í: Forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi (annað inn af hjónaherbergi), auka forstofu og þvottaherbergi. Innangengt í stóran bílskúr þar sem búið er að breyta u.þ.b. helming hans í studioíbúð með sérinngangi. Efri hæð skiptist í: Sjónvarpsstofu og tvö svefnherbergi.Húsið er skráð í dag 256,0 birtir fermetrar en arkitekt er búinn að uppfæra skráningartöflu, sem er verið að senda á Garðabæ, þar sem húsið er skráð 321,4 fermetrar.
Staðsetning hússins er frábær í rótgrónu hverfi þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu, s.s. leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, matvörubúðir og Smáralind í næsta nágrenni.
Nánari lýsing:
Aðalhæð:Forstofa: Er stór og björt, með flísum á gólfi og aukinni lofthæð.
Gangur: Með parketi á gólfi. Gengið þaðan upp á efri hæð.
Setustofa: Er rúmgóð, með parketi á gólfi, mikilli lofthæð og gluggum til vesturs og norðurs. Setustofa er opin við borðstofu.
Borðstofa: Er rúmgóð, með parketi á gólfi, mikilli lofthæð og gluggum til suðurs og vesturs. Útgengi á verönd til vesturs frá stofum.
Eldhús: Með flísum á gólfi og eldhúsinnréttingu með miklu borð- og skápaplássi. Eldhúseyja og góður borðkrókur. Eldhús er bjart með gluggum til suðurs og útgengi á verönd til suðurs. Flísar á milli skápa, tvöfaldur kæliskápur, bakaraofn, örbylgjuofn, stórt helluborð og eldhúseyja.
Baðherbergi I: Er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, sturta, stór innrétting við vask, upphengt salerni og gluggar til norðurs.
Hjónaherbergi: Er stórt, með parketi á gólfi, aukinni lofthæð og skápum á heilan vegg. Innangengt í baðherbergi II og gluggar til norðurs.
Svefnherbergi II: Er stórt, með parketi á gólfi, aukinni lofthæð og gluggum til norðurs.
Svefnherbergi III: Er rúmgott, með parketi á gólfi og gluggum til suðurs/austurs.
Þvottaherbergi: Er stórt, með flísum á gólfi, mikill innréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi. Vaskur, aukin lofthæð og útgengi á baklóð.
Efri hæð:Sjónvarpsstofa: Með parketi á gólfi og þakgluggum.
Svefnherbergi IV: Með teppi á gólfi og gluggum til norðurs.
Svefnherbergi V: Með teppi á gólfi og gluggum til suðurs.
Bílskúr: Með stórri bílskúrshurð og innangengt frá forstofu. Aukin lofthæð. Upphitaður og heitt/kalt vatn.
Studioíbúð/aukaíbúð: Er staðsett fyrir innan bílskúr með sérinngangi (norðan megin). Harðparket á gólfi og gluggar til norðurs. Eldhús og baðherbergi með sturtu.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.