Valhöll fasteignasala kynnir Lyngás 1G, íbúð 111, 210 Garðabær: Tveggja herbergja íbúð með
sérinngangi og sirka 30m2 sólpalli með skjólveggjum.Íbúðin er skráð alls 59,9 fm. þar af er geymsla 7,3 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í anddyri, á vinstri hönd er parketlagt svefnherbergi með fínu skápaplássi. Baðherbergi er flísalagt með góðri innréttingu, upphengdu klósetti, sturtu, handklæðaofni og tengi og gert er ráð fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Eldhús og stofa eru í parketlögðu opnu björtu samliggjandi rými með útgengi út á 30
m2 verönd með skjólveggjum sem snýr í suðaustur. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign.
Nánari upplýsingar veita:
Gylfi Þór Gylfason s. 7704040 löggiltur fasteignasali eða á gylfi@valholl.is eða Óskar H. Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 691-1931 eða oskar@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.