Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.isLindasíða 51-101 - Björt og falleg 3-4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð ásamt bílskúr á frábærum stað í Síðuhverfi - heildarstærð 110,4 m² þar af bílskúr 23,0 m²Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu sem nýtist sem fataherbergi í dag, þvottahús, sérgeymslu í sameign og bílskúr.
Nánari lýsing:
Forstofan er með harðparketi á gólfi og rúmgóðum hvítum fataskáp.
Eldhúsið er með harðparketi á gólfi, hvítri innréttingu, góðu skápa- og skúffuplássi, ljósri borðplötu og eyju þar sem ofn og helluborð er staðsett.
Stofan er björt og rúmgóð með stórum gluggum og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harðparketi á gólfum og rúmgóðum hvítum fataskápum.
Geymslan/þriðja herbergið er með flísum á gólfi og nýtist í dag sem fataherbergi þar sem gert hefur verið hurðar gat af ganginum. Einnig væri hægt að nýta þetta sem barnaherbergi eða geymslu.
Baðherbergið var tekið í gegn 2026 og er flísalagt í hólf og gólf, með hvítri innréttingu með handlaug, spegla skáp, sturtu með glervængjum, vegghengdu wc, handklæða ofni og glugga með rafmagnsopnun.
Þvottahúsið er með flísum á gólfi og góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þar er einnig vegghengdur vaskur og bekkpláss.
Sérgeymsla fylgir eigninni í sameign og einnig er geymsla úti undir stiga upp á efri hæð.
Bílskúrinn er 23,0 m² að stærð með lökkuðu gólfi, hillum og heitu og köldu vatni.
Annað:- Baðherbergið var tekið í gegn 2026
- Endaíbúð á jarðhæð með góðu aðgengi og frábæru útisvæði
- Snjóbræðsla er í hellulagðri stétt fyrir framan
- Tvö sér bílastæði fylgja eigninni auk bílskúrsins
- Frábær staðsetning í Síðuhverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla sem og líkamsræktina Bjarg, félagsaðstöðu eldri borgara og Norðurtorg
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.