LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali, félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu mikið endurbætta 2ja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu hæð) með einstöku útsýni yfir Tjörnina við Laufásveg 10 í Reykjavík. Frábær staðsetning í göngufæri við allt sem miðbærinn h... Sýna meira
LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali, félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu mikið endurbætta 2ja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu hæð) með einstöku útsýni yfir Tjörnina við Laufásveg 10 í Reykjavík. Frábær staðsetning í göngufæri við allt sem miðbærinn hefur uppá að bjóða. Birt stærð séreignar er 46,4 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands en þá er nýtanlegur gólfflötur töluvert stærri þar sem eignin er að hluta undir súð, birt brúttó stærð er 59,6 fm. Nánari lýsingForstofa / hol.Stofa og eldhús í opnu rými með hvítri innréttingu, innfelldum bakaraofni og helluborði, gufugleypir með ljósi fyrir ofan helluborð. Innbyggð tæki sem fylgja, kæliskápur, uppþvottavél og þvottavél. Svefnherbergi með stórum fataskáp.Baðherbergi, flísalagt með gólfhita. Hvít innrétting, upphengt salerni og walk-in sturta. Húsgjöld íbúðar eru 14.408 kr á mánuði en þá er allur almennur rekstur innifalinn, allt rafmagn í sameign, þrif sameignar og húseigendatrygging sem og framkvæmdasjóður. Eignin er töluvert mikið endurbætt jafnt innan sem utan en þá var farið í viðamiklar endurbætur innanhúss árin 2015 og 2016, skipt um allar innréttingar, gólfefni og tæki. Endurnýjaðar voru rafmagns-, vatns-, frárennslis- og ofnalagnir sem og einnig rafmagns-, net- og sjónvarpstenglar á sama tíma. Þá var þakgluggi í stofu endurnýjaður og síðan rúður í þakgluggum svefnherbergis árið 2021. Að utan var holræsi endurnýjað árið 2006 og þak hússins málað árið 2010. Árið 2011 var húsið endursteinað, svalir styrktar og svalahandrið endurnýjað, ytra byrði glugga málað stór gluggi á austurhlið hússins (Laufásvegsmegin) endurnýjaður. Sama ár var skipt um teppi stigagangs og veggir málaðir. Fyrirhugaðar eru framkvæmdir, viðgerðir á þökum og útskipti á öllum timburgluggum þ.m.t. að veltigluggar komi á þakið. (sjá yfirlýsingu húsfélags, fundargerð húsfélagsins dags 04.04.2022 og tilboð í verkið) Frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA