Jón Smári Einarsson, s. 8606400, löggiltur fasteignasali, og Fasteignaland kynna: Kílhraunsvegur 8 í Áshildarmýri, Skeiða- og GnúpverjahreppiNotalegt 36,5 fm bjálkahús ásamt um 12 fm gestahúsi á sérlega fallegri 6.030 fm íbúðarhúsalóð og eignarlóð. Eignin stendur í fallegu og lifandi hraunlandslagi og blasir glæsileg fjallasýn við í allar áttir. Lóðin er ræktuð og hefur verið nostrað við hana undanfarin ár með trjárækt, grasflötum, pöllum og skjólgóðum hraunlautum. Hér er möguleiki á rekstrarleyfi sem hentar fyrir útleigu, en búið er að gera breytingu á deiliskipulagi svæðisins og því hægt að nýta eignina til rekstur/útleigu allan ársins hring.Lýsing *
Aðalhús: 36,5 fm bjálkahús, byggt árið 2022. Rafmagnshitun.
Húsið er vel staðsett á lóðinni og umhverfis það er rúmgóður timburpallur sem tengist gestahúsinu.
Lokaúttekt hefur ekki farið fram. Samkvæmt upplýsingum seljanda þarf að ljúka við að einanga húsið til að fá lokaúttekt.
*
Stofa er björt með hátt til lofts og hurð út á sólpall. Eldhús og stofa eru í opnu sameiginlegu rými með parket á gólfi.
*
Eldhús með lítilli innréttingu, með ísskáp.
*
Hjónaherbergi með salernisaðstöðu. Gert hefur verið ráð fyrir að unnt verði að breyta hluta rýmisins í baðherbergi. Parket á gólfi.
*
Svefnherbergi með parket á gólfi með og kojum.
*
Geymsluskápur eru byggður aftan við húsið á sólpalli.
*
Gestahús (bjálkahús) 12 fm, er um 12 fm, óskráð og fulleinangrað. Þar er sturta, salerni og handlaug. Gestahúsið nýtist vel sem aukasvefnrými og er tengt aðalhúsinu með samfelldum timburpalli. Rafmagnshitun.
*
Geymsla sambyggð við gestahús. Lokuð og ágæt köld verkfærageymsla sem nýtt er fyrir garðáhöld o.fl.
*
Veitur: Húsin eru tengd köldu vatni og rafmagni. Gegnumstreymishitari er fyrir neysluvatn. Mögulegt er að taka inn heitt vatn ásamt síma og ljósleiðara, en þær taugar eru við lóðarmörk.
*
Frárennsli: Rotþró, um 2.700 lítrar, er tengd.
*
Lóðin: Ræktuð með trjám, grasflötum og tveimur fallegum hraunlautum með pöllum.
*
Byggingarréttur: Allt að 350 fm auk 60 fm aukahúss.
*
Lögheimili: Heimild er til fastrar búsetu með tilheyrandi þjónustu sveitarfélagsins. Húsið er skráð sem sumarhús, en hægt að breyta skráningu í einbýlishús.
Lóð, pallar og umhverfiLóðin er 6.030 fm eignarlóð með rétti til lögheimilisskráningar. Mikil vinna hefur verið lögð í ræktun hennar og frágang undanfarin ár. Gróðursett hefur verið töluvert af trjám, meðal annars greni, birki, reyni og öspum.
Töluverð jarðvinna hefur farið fram á lóðinni og þar eru tvær góðar grasflatir. Að öðru leyti einkennist landið af fallegu hrauni, skjólgóðum lautum og lifandi landslagi.
Timburpallur liggur umhverfis aðalhúsið og að gestahúsinu.
Auk þess hafa verið útbúnir pallar í tveimur sérlega fallegum hraunlautum:
* Í annarri lautinni er gönguleið að sólpalli þar sem kjörið væri að koma fyrir heitum potti og njóta kyrrðarinnar.
* Tilvalið er að hafa samverustundir, gítarspil og söng í hinni lautinni, en þar hefur stórum trjábolum verið komið fyrir sem sætum.
Heimreið og bílastæði hafa verið útbúin á lóðinni.
Eignin Kílhraunsvegur 8 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 251-0617, merkt 01-01, birt stærð 36.5 fm.
ByggingarmöguleikarHúsið var byggt árið 2022 og býður eignin upp á góða möguleika til frekari uppbyggingar og stækkunar. Sumarhúsið stendur á steyptum bitum.
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum fylgir lóðinni byggingarréttur fyrir allt að 350 fm íbúðarhúss auk 60 fm aukahúss. Núverandi bjálkahús býður jafnframt upp á góða möguleika til stækkunar.
AnnaðÁrgjald til Lóðafélagsins er um kr. 50.000. Kvöð er um aðild að félaginu.
Með deiliskiplagsbreytingu 2025 breytust lóðir á svæðinu í íbúðarhúsalóðir sem þýðir að heimilt er að skrá lögheimil þar með tilheyrandi þjónustu frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi samkvæmt þeim reglum sem gilda á hverjum tíma.
Um svæðiðKílhraunsvegur 8 er í Áshildarmýri í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Svæðið er vel staðsett og þaðan er stutt í fjölbreytta þjónustu á Selfossi, Flúðum og í Laugarási. Umhverfið einkennist af fallegu hraunlandslagi, mikilli náttúrufegurð og glæsilegri fjallasýn í allar áttir. Staðsetningin hentar því vel þeim sem vilja njóta friðsældar og náttúru án þess að vera langt frá daglegri þjónustu.
Hér er um að ræða einstakt tækifæri til að eignast sjarmerandi hús á sérlega fallegri og gróinni eignarlóð með búseturétti, góðum byggingarmöguleikum og mikilli framtíðarmöguleika.
Nánari upplýsingar veitir:Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur
jonsmari@fasteignaland.is
Sími 860-6400Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.