Hornbrekka 19, 625 Ólafsfirði - Vel staðsett 3ja herbergja sumarhús við bæjarmörk Ólafsfjarðar - Stærð 71,9 m².
Húsið stendur hátt og er afar gott útsýni frá því. Eignin skiptist með eftirfarandi hætti:Forstofa, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Húsið var byggt í tveimur áföngum, í eldri hluta hússins er:
Forstofa er með opnu fatahengi og dúk á gólfi
Eldhús er með snoturri innréttingu og stakstæðri eldavél. Dúkur á gólfi.
Svefnherbergi sem er nokkuð stórt og ber þess merki að hafa áður verið hugsað sem stofa og svefnherbergi.
Síðar var svo byggt við húsið og í þeirri viðbyggingu er:
Núverandi
stofa hússins, björt og með gluggum til tveggja átta.
Svefnherbergi með aukinni lofthæð og fataskáp.
Annað:
- Tveir geymsluskúrar eru við húsið, annar þeirra sá nýrri er stór og var settur á lóðina sumarið 2025.
- Húsið var klætt með báru fyrir nokkrum árum og hús og þak yfirfarið á þeim tíma.
- 2ja hektara leigulóð.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.