Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna:HLÍÐARHJALLI 14 - MIKIÐ ENDURNÝJUÐ 5 HERBERGJA ÍBÚÐFJÖGUR RÚMGÓÐ SVEFNHERBERGI - NÝLEGT ELDHÚS OG BAÐHERBERGI.NÁNARI LÝSING:Um er að ræða 113,2 fm íbúð á 1,hæð í vel við höldnu og mjög vel staðsettu fjölbýli, neðst í dalnum. (... Sýna meira
Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna:HLÍÐARHJALLI 14 - MIKIÐ ENDURNÝJUÐ 5 HERBERGJA ÍBÚÐFJÖGUR RÚMGÓÐ SVEFNHERBERGI - NÝLEGT ELDHÚS OG BAÐHERBERGI.NÁNARI LÝSING:Um er að ræða 113,2 fm íbúð á 1,hæð í vel við höldnu og mjög vel staðsettu fjölbýli, neðst í dalnum. (Geymsla íbúðarinnar er ca. 7 fm og er að sögn eiganda ekki skráð inni í fermetratölu íbúðarinnar. )Mjög barnvænt umhverfi, fallegur garður með leiktækjum og verið að setja upp rafhleðslustöðvar við bílastæði. Aðkoma mjög góð og snyrtileg og einnig öll sameign innandyra. Rúmgóð geymsla í sameign. Íbúðin:Anddyri/hol með flísum og fatehengi. Eldhúsið er all endurnýjað, hvítlökkuð plássgóð innrétting, vönduð tæki og svartar mattar flísar á gólfi. Borðstofa er við hlið eldhúss og rúmgóð stofa með útgengi á suðaustursvalir, parket á stofum. Baðherbergið er allt endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting, vegghengt salerni og tengi fyrir þvottavél. Barnaherbergin eru þrjú og eru þau öll rúmgóð með skápum og parketi á gólfum. Hjónaherbergið er með parketi og góðum skápum. Við hllðina á holinu við inngang er ágætis geymsla sem nýtist m.a. undir þurrkara og sem þurrkherbergi. Íbúðin er einstakleg vel skipulögð, björt og í mjög góðu standi. Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur eða Niðurlag:Eignin Hlíðarhjalli 14 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 206-1746, birt stærð 113.2 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Bókið skoðun hjá Ólafur Björn Blöndal í síma 6900811, eða Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur eða Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.