Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið - Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.
*
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Grenidalur 4D, 260 Reykjanesbær, birt stærð 98.9 fm.
Um er að ræða fallegt endaraðhús á einni hæð við Grenidal í Innri-Njarðvík. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, stofu og eldhús í opnu rými. Rúmgóður sólpallur.Nánari upplýsingar veita:
Jóna Björg Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5506, tölvupóstur jona@allt.isDísa Edwards Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5510, tölvupóstur disa@allt.is Nánari lýsing eignar:
Forstofa: með góðum fataskáp og parketi.
Eldhús og stofa eru í opnu rými með parketi á gólfi, góð hvít sérsmíðuð háglans innrétting, útgengt út á pall frá alrými.
Hjónaherbergi: með parketi á gólfi, góðum fataskáp og fataherbergi.
Barnaherbergi: rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi: góð hvít innrétting, upphengt salerni, walk in sturta og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
* Góður suður pallur
* Endalóð
* Bílastæði fyrir 4 bíla
* Sérinngangur
* Gólfhiti
* Tvö svefnherbergi
* Aðeins 25mín frá höfuðborgarsvæðiVertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið - Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.