Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í almennri sölu: Raðhúsið Foldahraun 37G í Vestmannaeyjum sem er 5 herbergja björt, falleg og vel skipulögð eign í vesturbænum. Eignin er byggð úr steini árið 1975 og er 157,5 m2, þar af er bílskúr 27,6 m2. 4 svefnherbergi og bílskúr. Þakgluggar gefa mikla birtu í eignina. Einstakt útsýni yfir smáeyjarnar. Húsfélag mun klára að skipta um útihurð, klára múrviðgerðir og mála eignina að utan og laga sorpgeymslu , fjármagn er til í hússjóði til að klára þessar framkvæmdir.
Stutt í dalinn, golfvöllinn og Hamarskóla þar sem er búið að koma upp skemmtilegu leiksvæði með hoppudýnu og fleiru.
Fyrir nánari upplýsingar eða til að bóka skoðun hafið samband á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105Nánari lýsing: Forstofa: Flísar á gólfi,
Þvottahús: Flísar á gólfi, innrétting, wc, skolvaskur
Hol: Parket á gólfi
Herbergi: Parket á gólfi, útgengt í garð, nettur steyptur pallur
Eldhús: Flísar á gólfi, hvít innrétting
Stofa: Parket á gólfi
Baðherbergi: Flísar á gólfi og votrýmum, (upphengt wc?), handklæðaofn, innrétting
Herbergi 2: Parket á gólfi
Herbergi 3: Parket á gólfi
Herbergi 4: Parket á gólfi, skápar
Geymsla: Útigeymsla, steypt gólf, ekki upphituð
Svalir: Útgengt úr borðsstofu
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignirþví skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.