LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynna glæsilegt og mikið endurnýjað raðhús með góðri garðaðstöðu til suðurs og sér bílastæði við Fálkagötu 29 í Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin sem er skráð samkvæmt þjóðskrá 223 m2 hefur á síðustu árum gengið í gegnum gagngerar endurbætur. Búið er að útbúa sér íbúð á jarðhæð en mjög auðvelt væri að breyta því í fyrra horf.
Nánari lýsing-inngangshæð Gengið er inn í flísalagða forstofu með nýlegum flísum á gólfi og þaðan eru tveir inngangar, annars vegar í aðalíbúðina og hins vegar aukaíbúðina. Komið er inn í flísalagt hol með nýlegum flísum á gólfi með góðum skápum. Á hæðinni er flísalagt þvottahús með góðri innréttingu, geymslu og aðstöðu til að nota áður en farið er í út í heita pottinn.
Miðhæð hússins Samanstendur af stofu, eldhúsi, rúmgóðu svefnherbergi og baðherbergi. Stofan/borðstofan er parketlögð með vönduðu gegnheilu fiskibeinaparketi, með útgengi á tvennar svalir, fallegur arinn. Eldhúsið er parketlagt með gegnheilli eik með vandaðri hvítri innréttingu og eldunareyju með marmaraborðplötu og stóru Siemens helluborði með innbyggðum háfi. Opið er á milli eldhússins og stofunnar. Svefnherbergið er parketlagt og er með góðum fataskápum. Baðherbergið er flísalagt, grá innrétting, baðkar með sturtu, handklæðaofni og upphengt salerni.
Rishæð Gengið er upp fallegan sérsmíðaðan stiga á efstu hæð í hjónaherbergið þaðan sem útsýni er yfir Skerjafjörð og Reykjanes.
Aukaíbúðin samanstendur af stofu þaðan sem opið er yfir í eldhús með nýlegri innréttingu með nýlegu parketi á gólfi, rúmgóðu svefnherbergi með parketi á gólfi og baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél. Auðvelt væri að breyta íbúðinni í fleiri svefnherbergi og gera rýmið aftur hluta af heildarhúsinu.
Gengið er frá jarðhæðinni á tveimur stöðum út á skjólsælan pall sem er sólríkur og með heitum potti. Útigeymsla er í garði.
Um er að ræða nokkuð mikið endurnýjað raðhús á góðum stað í Vesturbænum þar sem stutt er í skóla, leikskóla alla helstu þjónustu og iðandi mannlíf miðbæjarins. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is