ÁRBORGIR FASTEIGNASALA 4824800 kynnir í einkasölu:
Fagraland 4
98,9 fm raðhús í vinsælu hverfi á Selfossi.Að innan skiptist hún í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og þvottahús/geymslu.
Anddyri er flísalagt og með fatahengi.
3 svefnherbergi eru í eigninni öll með parketi á gólfi.
Þvottahús og geymsla er með fínni innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar eru á gólfi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Innrétting með handlaug, upphengt wc og walk-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Handklæðaofn við sturtuop.
Eldhús er með fínni innréttingu, Siemens ofn og spanhelluborð.
Borðstofa og stofa með útgengi í bakgarð en þar er rúmgóður pallur með heitum pott.
Gólfefni íbúðarinnar eru parket & flísar frá Birgison. Hurðar einnig frá Birgison.
Hvítar þiljur og innfeld lýsing í loftum.
Húsið stendur á eignarlóð.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga
arborgir@arborgir.is